Orkuútrás REI talin stefna í gjaldþrot 23. mars 2009 07:00 Orka IAE starfar að fjölmörgum verkefnum í Bandaríkjunum en illa horfir með flest þeirra, og stjórnarmaður segir eignir verðlitlar.fréttablaðið/gva
Orkumál Iceland America Energy (IAE), félag í meirihlutaeigu REI, útrásararms Orkuveitu Reykjavíkur, er svo gott sem gjaldþrota og eignir félagsins í Bandaríkjunum eru flestar verðlitlar og duga ekki fyrir skuldum. Fjárfesting sem nemur um 1,8 milljörðum króna, og er að mestu leyti íslensk, virðist að engu orðin. Verði félagið gjaldþrota er það talið hafa í för með sér fjölda málsókna vegna ógreiddra launa og skulda við birgja. Tal Finney stjórnarmaður, sem á fimmtán prósent í IAE, kynnti opinberlega viðskiptaáætlun til að bjarga IAE. Þar kemst Finney að þeirri niðurstöðu að félagið sé svo gott sem gjaldþrota og flestar eignir félagsins séu verðlitlar. Grunnhugsunin í áætlun hans er að REI leggi félaginu til 340 milljónir króna í rekstrarfé. Hann telur að hægt sé að margfalda virði félagsins á nokkrum mánuðum. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins eru litlir möguleikar á því að rétta félagið við í því viðskiptaumhverfi sem nú er í Bandaríkjunum. Fái Finney hljómgrunn hjá stjórnendum OR og REI rynni rekstrarféð að líkindum að hluta í hans eigin vasa þar sem hann er einn kröfuhafa á IAE vegna leigu á skrifstofuhúsnæði, lögfræði- og ráðgjafarstarfa. Kjartan Magnússon, stjórnarformaður REI, fór til Bandaríkjanna nýlega til að kynna sér stöðu fyrirtækisins og fundaði með Tal Finney. Hann telur það ofsagt að IAE sé svo gott sem gjaldþrota. Hann segir að reynt sé að hámarka þau verðmæti sem búi í fyrirtækinu. „Einn hefur gefið sig fram og lýst yfir áhuga.“ Kjartan vill ekki gefa upp hver sá aðili sé né hvað hann vilji að borga fyrir IAE. Jafnframt segir Kjartan að það komi ekki til greina að REI leggi IAE til frekara rekstrarfé, eins og Tal Finney telur að sé nauðsynlegt. Hezy Ram, eigandi orkufyrirtækisins Ram Power Inc., sem GGE, fyrrverandi meirihlutaeigandi í IAE, fékk til að meta stöðu fyrirtækisins í desember 2008, komst einnig að þeirri niðurstöðu að fyrirtækið væri í alvarlegum vanda. Ram mælti með að umsvif IAE yrðu stórlega minnkuð með sölu eigna og skuldir greiddar. Spurður um stöðumat sitt á fyrirtækinu segir Hezy Ram að hann hafi starfað í nokkra daga hjá IAE eftir að fyrrverandi framkvæmdastjóri, Magnús B. Jóhannesson, var rekinn. „Ég kom þeirri skoðun minni á framfæri við stjórnina að eina leiðin til að koma í veg fyrir gjaldþrot væri sala eigna. Mínum hugmyndum var hafnað enda þýddi hún að eigendur IAE fengju ekkert.“ svavar@frettabladid.is
Mest lesið Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Sjá meira