Íslendingar og Færeyingar undirrita lánssamning 23. mars 2009 18:29 Steingrímur skrifaði undir samninginn fyrir hönd Íslendinga.
Færeyingar og Íslendingar undirrituðu í dag lánssamning milli Landsstjórnar Færeyja og íslenska ríkisins. Samkvæmt samningnum lánar Landsstjórn Færeyja íslenska ríkinu 300 milljónir danskra króna. Lánið frá Færeyjum er veitt til langs tíma og á hagstæðum kjörum. Það er viðbót við lán Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, sem nemur 2.100 milljónum Bandaríkjadala, og er veitt til stuðnings við efnahagsáætlun íslenskra stjórnvalda í samstarfi við sjóðinn. Lánunum er ætlað að efla gjaldeyrisvarasjóð Íslands í þeim tilgangi að koma á jafnvægi í íslenskum efnahagsmálum eftir fjármálakreppuna sem skall yfir í haust. Þetta er fyrsta tvíhliða lánið til Íslands af þessu tagi, en Danmörk, Finnland, Noregur og Svíþjóð, hafa sameiginlega gefið fyrirheit um að veita Íslandi gjaldeyrislán sem nemur 2.500 milljónum Bandaríkjadala. Í tilkynningu frá fjármálaráðuneytinu kemur fram að viðræður um gerð lánasamninga við þessi fjögur Norðurlönd standi nú yfir og sé þess að vænta að þeim verði lokið á næstu vikum. Þá eru í gangi viðræður við fulltrúa Póllands og Rússlands um gjaldeyrislán til Íslands sem þau hafa gefið fyrirheit um. Undir lánssamninginn milli Færeyja og Íslands skrifuðu Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra og Joannes Eidesgaard fjármálaráðherra Landsstjórnar Færeyja. Með fjármálaráðherra voru í för til Þórshafnar þeir Svein Harald Øygard, seðlabankastjóri, Jón Sigurðsson, formaður viðræðunefndar íslenska ríkisins um gjaldeyrislánasamninga og Sturla Pálsson, framkvæmdastjóri alþjóða- og markaðssviðs Seðlabanka Íslands.
Mest lesið Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Sjá meira