Saka íslensk stjórnvöld um gerræðisleg vinnubrögð 23. mars 2009 19:15 Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra segir mikið langlundargeð hafa verið sýnt.
Erlendir lánadrottnar saka íslensk stjórnvöld um gerræðisleg og illa ígrunduð vinnubrögð vegna yfirtökunnar á SPRON. Tap lánadrottna SPRON og Sparisjóðabankans er talið nema rúmum 150 milljörðum króna. Fjármálaeftirlitið tók yfir rekstur SPRON og Sparisjóðabankans á laugardaginn. Bankarnir voru þá búnir að starfa í fimm mánuði á undanþágu frá Fjármálaeftirlitinu vegna bágrar eiginfjárstöðu. Erlendir lánadrottnar vildu bjarga bönkunum frá falli og lögðu meðal annars fram tilboð sem fól í sér afskriftir skulda og lengingu lána. Þetta tilboð þótti hins vegar ekki nógu gott. „Það var mat manna að þau tilboð sem fyrir lágu væru alveg ófullnægjandi til þess að tryggja þessum tveimur aðilum lífvænlega framtíð," sagði Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, í samtali við fréttastofu. Fréttastofa hefur undir höndum bréf sem fulltrúar 35 erlendra lánastofnana sendu stjórnvöldum á föstudaginn í síðustu viku. Um er að ræða stærstu lánadrottna SPRON. Þar eru stjórnvöld m.a. vöruð við því að taka yfir rekstur bankans. Það verði séð sem gerræðisleg og illa ígrunduð vinnubrögð. Óskað er eftir fundi með stjórnvöldum áður en gripið verður til aðgerða. Viðskiptaráðherra segir að ekki hafi gefist meiri tími til skrafs og ráðagerða. „Það var búið að sýna þeim mikið langlundargerð. Það voru liðnir fimm mánuðir frá falli bankanna og það lá fyrir að SPRON og Icebank væru ekki starfhæfir nema kröfuhafar féllu frá stórum hluta sinna krafna. Það var búið að reyna mánuðum saman að ná einhverri niðurstöðu í það en það tókst ekki," segir Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra. Samkvæmt heimildum fréttstofu þurfa erlendir lánadrottnar að afskrifa allt að 1 milljarð evra vegna gjaldþrots bankanna eða sem nemur rúmum 150 milljörðum króna.
Mest lesið Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Sjá meira