Viðskipti innlent

Landsbankinn og Straumur ná samkomulagi um uppgjör krafna

Landsbanki Íslands hf. og Straumur-Burðarás fjárfestingabanki hf. hafa gengið frá samkomulagi um uppgjör krafna í milli bankanna þar með töldum kröfum vegna peningamarkaðslína, lána, afleiðustaða, skuldabréfa og ábyrgða.

Í tilkynningu frá Straumi kemur fram að uppgjörið feli í sér skuldajöfnun og yfirfærslur eigna frá Straumi til Landsbankans. Samningurinn hefur ekki efnisleg áhrif á rekstrarreikning Straums og engin áhrif á lausafjárstöðu bankans. Hins vegar minnka heildareignir Straums um um það bil 200 milljónir Evra og hækkar eiginfjárhlutfall um tæp 2%.

Samningur þessi er í samræmi við stefnu Straums um að draga úr stærð efnahagsreiknings bankans og heildaráhættu í rekstri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×