Bankastjórar gömlu bankanna fengu 3200 milljónir í laun 3. mars 2009 18:33
Sjö bankastjórar gömlu bankanna fengu yfir þrjúþúsund og tvöhundruð milljónir króna í laun, hlunnindi og bónusa á fimm árum. Sýnir veruleikafirringu manna í bankakerfinu segir Ólafur Ísleifsson hagfræðingur sem hvetur fyrrum bankastjóra til að feta í fótspor Bjarna Ármannssonar og skila einhverju til baka. Fréttastofa rýndi í dag í ársskýrslur gömlu bankanna þriggja þar sem liggja fyrir upplýsingar um laun, hlunnindi og bónusa bankastjóranna á árunum 2003 til og með 2007. Við lögðum tölurnarnar saman og birtum þær hér strípaðar, það er, þær eru ekki uppreiknaðar til núvirðis. Sólon Sigurðsson hjá Kaupþingi fékk fyrir tvö ár rúmar 104 milljónir króna. Lárus Welding fékk á einu ári hjá Glitni 376 milljónir króna. Fimm þeirra voru bankastjórar öll árin. Af þeim er Halldór J. Kristjánsson hjá Landsbankanum lægstur með samtals röskar fjögur hundruð milljónir. Hinn Landsbankastjórinn, Sigurjón Þ. Árnason, er næstlægstur með rúmar 467 milljónir. Þriðji launahæsti bankastjórinn var Hreiðar Már Sigurðsson hjá Kaupþingi með tæpar 487 milljónir. Sigurður Einarsson Kaupþingi, gerði hundrað milljónum betur og var með rífar 590 milljónir. Bjarni Ármannsson hjá Glitni trónir svo á toppnum, með rúmar 782 milljónir króna. Laun hans rösklega tífölduðust á þessum fimm árum. Samanlagt voru bankastjórarnir sjö með tæplega 3213 milljónir króna í laun fyrir fimm ár. Varkárustu spámenn segja skuldir ríkissjóðs vegna bankahrunsins verða 145 sinnum hærri. Launakóngurinn í þessum hópi, Bjarni Ármannsson, ákvað að skila hluta af sínum launum til baka.
Mest lesið Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Viðskipti innlent Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Viðskipti innlent Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Viðskipti innlent Ástarsaga: Markmiðið að allir verði ástfangnir af LOVE Atvinnulíf Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Viðskipti innlent Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? Viðskipti innlent Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Viðskipti innlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Samstarf Fleiri fréttir Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Sjá meira