Útiloka ekki að dagblaðið 24 stundir verði endurvakið 16. febrúar 2009 18:37
Nýir fjárfestar í Árvakri, útgáfufélagi Morgunblaðsins, þurfa að leggja fram rúman hálfan milljarð króna, til viðbótar yfirtöku skulda, vilji þeir eignast félagið. Í tilboðsgögnum er ekki útilokað að dagblaðið 24 stundir verði endurvakið. Fyrirtækjaráðgjöf Nýja Glitnis, sem sér um söluna á Árvakri, hefur boðið fjórum hópum fjárfesta að leggja fram skuldbindandi tilboð í félagið. Í tilboðsgögnunum kemur fram upphæð þeirra skulda sem hvíla á Árvakri, alls um 4,6 milljarðar króna - sem eru bæði skammtíma- og langtímalán og munu væntanleg tilboð einkum ganga út á hve mikið nýr hluthafahópur er tilbúinn til að taka yfir af skuldum félagins. En það er ekki nóg því auk yfirtöku milljarðaskulda þurfa nýir hluthafar að reiða fram rúmlega fimm hundruð milljónir króna - annars vegar 300 milljónir í eigið fé og hins vegar tæpar 230 milljónir sem eru kröfur komnar á gjalddaga. Ýmislegt forvitnilegt er að finna í tilboðsgögnunum, sem fréttstofan hefur undir höndum. Þar segir til að mynda að fjölmiðlar á Íslandi - Ríkisútvarpið þar með talið - eigi í verulegum rekstrarerfiðleikum. Árvakur hafi hins vegar mikla möguleika. Fullyrt er að unnt sé að auka sjónvarpsútsendingar á netinu á hagkvæman hátt og að dagblaðið 24 stundir megi endurvekja með skömmum fyrirvara - fýsilegur kostur sé að gefa það út í takmörkuðu upplagi ef útgáfu Fréttablaðsins verði hætt. Að auki geti félagið gefið út sérblöð um leið og efnahagsástandið batnar, sem geti gefið góðan hagnað. Þrír innlendir fjárfestahópar hafa sýnt Árvakri áhuga og það hafa tveir erlendir auðmenn einnig gert. Bindandi tilboð fjárfesta skulu berast eigi síðar en klukkan fjögur næstkomandi fimmtudag.
Mest lesið Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Sjá meira