Kortavelta sýnir hríðversnandi stöðu íslenskra heimila 16. febrúar 2009 12:41
Ört minnkandi kortavelta að raunvirði er til marks um hríðversnandi stöðu íslenskra heimila. Erlend velta hefur skroppið mun meira saman en innlend, enda leggjast veik króna og erfiðari fjárhagur margra heimila á eitt um að draga úr ferðagleði landans. Greining Glitnis fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir að samkvæmt nýbirtum tölum Seðlabanka nam heildarvelta innlendra kreditkorta í janúarmánuði 24,5 milljörðum kr., en þar sem velta kreditkorta er miðuð við kortatímabil en ekki almanaksmánuði í tölum bankans er hér um stóran hluta jólaverslunar landsmanna að ræða. Að krónutölu var veltan 15% minni í síðasta mánuði en á sama tíma í fyrra. Það segir hins vegar ekki alla sögu vegna þess hversu verðlag hefur hækkað mikið og krónan fallið á tímabilinu. Sé veltan staðvirt með vísitölu neysluverðs og gengisvísitölu krónu kemur upp úr dúrnum að innlend kreditkortavelta dróst saman um tæp 28% á þessu tímabili og erlend velta um nærri 54% á sama tíma. Erlendu veltutölurnar ríma raunar ágætlega við aðrar vísbendingar um ferðagleði Íslendinga á borð við brottfarir um Leifsstöð. Mikið dró þannig úr jólainnkaupaferðum til útlanda á milli ára, og eins virðist landinn frekar stunda skíðamennsku innan lands en utan eftir bankahrunið, miðað við síðustu misseri.
Mest lesið John Strickland: Icelandair þarf að vera snjallt þegar nýjar þotur breyta leiknum Viðskipti innlent Þróunin í þá átt að verða enn meiri kaupendamarkaður Viðskipti innlent Rakel nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Viðskipti innlent Vilja að Evrópa velji á milli loftslagsins og gervigreindarkapphlaupsins Viðskipti erlent Segir ríkar ástæður fyrir því að flugmenn eigi að vera vel launaðir Viðskipti innlent Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Viðskipti innlent Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Viðskipti innlent Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum Viðskipti innlent Að fólk skilji garðhúsgagnabúslóðirnar eftir heima Neytendur Milla ætlar í formanninn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Rakel nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Segir ríkar ástæður fyrir því að flugmenn eigi að vera vel launaðir Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum John Strickland: Icelandair þarf að vera snjallt þegar nýjar þotur breyta leiknum Samkeppnishæfni Íslands og annarra Norðurlanda fellur milli ára Þróunin í þá átt að verða enn meiri kaupendamarkaður Nýtt endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtæki undir merkjum LOGOS Villi Birgis grætur Krambúðina á Akranesi Bláa lónið festir kaup á Arctic Adventures og stefnir á markað LánHeimur ekki undir eftirliti fjármálaeftirlits ESB gæti markað endalok umdeildra skilmála Icelandair Byrjaði sem fulltrúi í söludeild dótturfyrirtækis og er nú framkvæmdastjóri hjá Eimskip Klára námslánið eða greiða inn á húsnæðislánið? Milla ætlar í formanninn Efna til útboðs hlutabréfa að virði 125 milljóna dala Tilboð Reita í uppbyggingu hjúkrunarheimilis valið Ekki sést til lands í deilunni sem hefur haft áhrif á yfir sjö þúsund farþega Sigurjón nýr framkvæmdastjóri Mediacom Ógnarlöng stefna Samkeppniseftirlitsins kemst að eftir allt saman Hakkarar geti lesið gögn af læstri tölvu á tíu mínútum án lykilorðs Sýndareftirlit ef fylgjast eigi með skemmtistöðum á skrifstofutíma Tillögur ráðherra sagðar rýra virði bankanna um tugi milljarða Fjármálaráðherra veldur fyrrverandi varaformanni Viðreisnar vonbrigðum Höskuldur nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Enn fjölgar aflýsingum Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Sjá meira