Aflaverðmæti íslenskra skipa jókst verulega á síðasta ári 16. febrúar 2009 09:27
Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 91 milljarði króna á fyrstu ellefu mánuðum ársins 2008 samanborið við 75,1 milljarð á sama tímabili árið 2007. Aflaverðmæti hefur því aukist um 15,8 milljarða eða 21,1% á milli ára. Aflaverðmæti í nóvember nam 11,1 milljarði kr. miðað við 6,1 milljarð kr. í nóvember 2007. Greint er frá þessu á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að aflaverðmæti botnfisks frá janúar til nóvember 2008 nam 64,1 milljarð kr. og jókst um 13,5% miðað við sama tímabili árið 2007. Verðmæti þorskafla var um 29 milljarðar kr. og jókst um 7,3% frá fyrra ári. Aflaverðmæti ýsu nam 14,2 milljörðum og jókst um 5,8% en verðmæti karfaaflans nam 8,3 milljörðum, sem er tæp 48% aukning frá sama tímabili árið 2007. Verðmæti ufsaaflans jókst einnig umtalsvert, það nam tæpum 5,7 milljörðum kr. sem er 43,1% aukning miðað við fyrstu ellefu mánuði ársins 2007. Verðmæti flatfiskafla frá janúar til nóvember nam 5,7 milljörðum og jókst um 42,7% frá fyrra ári. Aflaverðmæti uppsjávarafla nam tæpum 20 milljörðum, sem er 46,1% aukning miðað við fyrstu ellefu mánuði ársins 2007. Verðmæti síldaraflans frá janúar til nóvember nam tæpum 11 milljörðum sem er 122,9% aukning frá sama tímabili árið 2007. Verðmæti makríls jókst einnig mikið á milli ára, nam 4,6 milljörðum samanborið við 1,6 milljarð fyrstu ellefu mánuði ársins 2007. Verðmæti afla, sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands nam 33,7 milljörðum króna sem er aukning um 9,9% frá fyrra ári. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands jókst um 1,1% milli ára og nam 12,2 milljörðum fyrstu ellefu mánuði ársins. Aflaverðmæti sjófrystingar nam 30,7 milljörðum og jókst um 36,8% og verðmæti afla sem fluttur er út óunninn nam 11,2 milljörðum, sem er 39,1% aukning frá sama tímabili árið 2007.
Mest lesið Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Sjá meira