Lánadrottnar yfirtaka allt hlutafé í Nýsi hf. 16. febrúar 2009 13:06
Í kjölfar óformlegs greiðslustöðvunarferlis hefur viðræðum milli eigenda Nýsis hf. og helstu lánadrottna félagsins nú lokið með yfirtöku lánardrottna á öllu hlutafé í Nýsi . Lánadrottnarnir eru NBI, Landsbankinn, Nýr Glitnir, Nýja Kaupþings, SPRON, Byr sparisjóður ásamt fleirum Í tilkynningu um málið segir að samhliða formlegri aðkomu aðila að félaginu munu lánardrottnar félagsins nú vinna að því að ljúka endurskipulagningu þess með sölu eða lokun óarðbærra dótturfélaga Nýsis hf. í huga. Markmið endurskipulagningarinnar er að tryggja rekstrarhæfi Nýsis hf. og valdra dótturfélaga en það er ljóst að yfirstandandi efnahagsþrengingar ásamt gengisfalli íslensku krónunnar og hárri verðbólgu hefur rýrt eigið fé Nýsis hf. og dótturfélaga til mikilla muna. Í þessu sambandi er rétt að geta þess að fyrri eigendur Nýsis hf. hafa nú þegar gengið frá sölu á hlut félagsins í Meritum ehf. (móðurfélagi Miða.is og Billetlugen APS) til Straums Burðaráss Fjárfestingabanka hf. og óskað eftir því að Nýsir fasteignir hf. verði tekið til gjaldþrotaskipta enda hefur skuldastaða félagsins versnað umtalsvert síðastliðið ár og vanskil félagsins og dótturfélaga þess gagnvart NBI hf. (áður Landsbanka Íslands hf.) meiri en við var ráðið. Ennfremur standa yfir viðræður um sölu á hlutum Nýsis í þróunarverkefnum félagsins við hlið Tónlistarhússins á austurbakka Reykjavíkurhafnar og yfirtöku Landsbankans á dótturfélögum Nýsis í Bretlandi. Með formlegri yfirtöku helstu lánardrottna Nýsis hf. á félaginu hefst nú næsta stig í endurskipulagningu þess. Vonir standa til að niðurstaða um framtíðareignarhald félagsins og dótturfélaga muni skýrast á næstu 2-3 mánuðum. Fyrrverandi eigendur Nýsis, þeir Sigfús Jónsson og Stefán Þórarinsson, hafa ennfremur sagt skilið við félagið en framkvæmdastjóri félagsins frá og með 16. febrúar verður Haraldur L. Haraldsson.
Mest lesið Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Viðskipti erlent Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Viðskipti innlent Kalla inn pylsur vegna prentvillu Neytendur Tók fimm mánuði að byrja að tala íslensku Atvinnulíf Hreiðar Már og Kristján Ara sleppa líklega undan ábyrgð Viðskipti innlent „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ Viðskipti innlent Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Viðskipti innlent Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Viðskipti innlent Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Viðskipti innlent Innkalla frosin hindber eftir að skordýr fannst í pokanum Neytendur Fleiri fréttir Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Sjá meira