Baugur lokar skrifstofu á Íslandi - 15 sagt upp störfum 30. janúar 2009 16:10 Gunnar Sigurðsson, forstjóri Baugs.
Baugur Group hefur ákveðið að loka skrifstofu sinni á Túngötu og hefur öllum fimmtán starfsmönnum fyrirtæksins hér á landi verið sagt upp störfum. Jafnframt hyggst Baugur fækka starfsmönnum í Bretlandi úr 29 í 16. Gunnar Sigurðsson, forstjóri Baugs, sagði í samtali við Vísi að þetta væri lokahnykkurinn í því ferli sem greint var frá síðasta sumar og fól í sér að flytja alla starfsemi félagsins erlendis. „Það er ljóst að starfsemi okkar hefur breyst verulega. Við munum á næstunni einbeita okkur að halda utan um núverandi eignir okkar í stað þess að standa í fjárfestingum. Nær allar okkar eignir eru í Bretlandi og því er eðlilegt að færa starfsemina þangað," segir Gunnar. Varðandi fækkun starfsfólks í höfuðstöðvum félagsins í London segir Gunnar að verið sé að leggja lokahönd á að búa til sextán manna hóp sem muni vinna áfram. Það þýði að þrettán einstaklingum verði sagt upp á næstunni. Gunnar segir að ekki séu fyrirhugaðar neinar sölur á eignum Baugs á næstunni. „Við erum í áframhaldandi viðræðum við bankana með það fyrir augum að vernda verðmæti eigna okkar og passa upp á þau 53 þúsund störf sem eru í húfi í fyrirtækjum okkar. Annars erum við gríðarlega ánægðir með stöðuna á eignasafninu," segir Gunnar og bætir við að heildarjólasala fyrirtækja í eigu Baugs hafi verið 1,5 prósent meira en á síðasta ári á meðan markaðurinn í heild hafi farið niður um 1,7 prósent. „Auk þess var rekstarhagnaðurinn á milli ára óbreyttur sem er ótrúlegt í þessu árferði," segir Gunnar.
Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Sjá meira