Viðskipti innlent

Landsbankinn fær greiðslustöðvun í Bandaríkjunum

Landsbanka Íslands hf. hefur verið veitt viðurkenning á greiðslustöðvun í Bandaríkjunum. Glitnir hafði áður fengið samskonar viðurkenningu.

Í tilkynningu frá skilanefnd Landsbankans segir að dómstóll í New York hefur viðurkennt greiðslustöðvun þá sem Héraðsdómur Reykjavíkur veitti Landsbankanum hinn 5. desember 2008. Viðurkenning þessi er veitt samkvæmt 15. kafla bandarísku gjaldþrotaskiptalaganna.

Viðurkenning þessi veitir bankanum sambærilega vernd og greiðslustöðvun veitir bankanum á Íslandi og á evrópska efnahagssvæðinu, sbr. ESB tilskipun um endurskipulagningu og slit lánastofnana, í þeim tilgangi að hámarka verðmæti eigna og tryggja jafnræði kröfuhafa.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×