Stjórnvaldsektum FME beitt gegn 30 aðilum frá 2007 30. janúar 2009 15:32
Fjármálaeftirlitið (FME) hefur lagt stjórnvaldssektir á tæplega 30 aðila frá miðju ári 2007 til ársloka 2008. Um er að ræða álagningu stjórnvaldssekta vegna brota á lögum um vátryggingastarfsemi, lögum um fjármálafyrirtæki og lögum um verðbréfaviðskipti. Hæsta sekt sem FME hefur lagt á lögaðila er 20.000.000 kr. Hæsta sekt sem FME hefur lagt á einstakling er 1.000.000 kr. Á tímabilinu var þremur málum vísað til lögreglu. Fjallað er um málið á heimasíðu FME þar segir að nokkur málanna sneru að brotum gegn reglum um virka eignarhluti samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki. Með virkum eignarhlut er átt við beina eða óbeina hlutdeild í fyrirtæki sem nemur 10% eða meira af eigin fé, stofnfé eða atkvæðisrétti, eða aðra hlutdeild sem gerir kleift að hafa veruleg áhrif á stjórnun viðkomandi fyrirtækis. Meðal annars var um að ræða brot sem laut að því að ekki var sótt fyrirfram um að fara með virkan eignarhlut, eins og lög gera ráð fyrir. Eitt mál sneri að broti gegn lögum um fjármálafyrirtæki vegna viðskipta starfsmanna við fjármálafyrirtæki. Umrædd lagagrein kveður á um að samningur fjármálafyrirtækis um lán, ábyrgðir, kauprétt eða sambærileg viðskipti við framkvæmdastjóra sé háð samþykki stjórnar fyrirtækisins. Á tímabilinu var eitt fjármálafyrirtæki sektað vegna brots á tilkynningarskyldu um fjármálafyrirtæki, vegna misbrests á því að tilkynnt væri um fyrirhugaða starfsemi erlendis, áður en hún hófst. Á tímabilinu var í tveimur tilvikum sektað vegna brots á reglum um virka eignarhluti í lögum um vátryggingastarfsemi. Nokkur hluti þeirra mála sem beitt var sektum í varða brot á lögum um verðbréfaviðskipti. Af þessum málum voru 17 málanna tilkynningarskyldubrot (tilkynninga- og birtingarskyldubrot), þ.e.a.s. brot vegna of seint fram kominna tilkynninga vegna viðskipta innherja eða aðila þeim tengdum, með vísan til laga um verðbréfaviðskipti.
Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Sjá meira