Hagvöxtur þarf að vera 4,5% til að fjölga störfum um 20 þúsund 16. apríl 2009 13:46 Það þarf 4,5% hagvöxt á ári allt til ársins 2015 til að fjölga störfum um 20 þúsund.
Líklegt er að landsframleiðsla þurfi að vaxa um tæpan fjórðung fram til ársins 2015 til þess að störfum verið fjölgað um 20 þúsund. Þetta kemur fram í nýrri frétt á vef Samtaka atvinnulífsins en tölfræði frá árunum 1963 - 2008 sýnir að hverri prósentu í hagvexti fylgdi fjölgun starfa um hálft prósent á þeim tíma. Samtök atvinnulífsins segja að að því gefnu að landsframleiðslan minnki um 10% á þessu ári og að enginn hagvöxtur verði á næsta ári þá þurfi hagvöxtur að vera 4,5% árlega að jafnaði á árunum 2011-2015 svo þetta markmið náist. Full atvinna náist ekki með öðrum hætti að því gefnu að jafnvægi verði í búferlaflutningum til og frá landinu á komandi árum. „Ársstörfum fjölgaði um 90% á tímabilinu 1963 til 1997 eða um rúmlega 2% á ári að jafnaði. Á sama tímabili var hagvöxtur að jafnaði 4% árlega þannig að hver prósenta í hagvexti skapaði grundvöll fyrir 0,5% fjölgun starfa. Hinn mikli hagvöxtur skapaði grundvöll bæði fyrir mikilli fjölgun starfa umfram fólksfjölgun og stórbættum lífskjörum. Starfandi fólki fjölgaði einnig um rúm 2% á ári að jafnaði á tímabilinu 1997 til 2008 og hagvöxtur var rúmlega 4% árlega þannig að einnig á þessu tímabili fylgdi hverri prósentu í hagvexti 0,5% fjölgun starfa. Fækkun starfa á þessu ári er þó mun meiri en fall landsframleiðslu gefur tilefni til samkvæmt þessu sambandi. Það skýrist að miklu leyti af þeim óvenjulegu aðstæðum sem ríkjandi eru í kjölfar bankahrunsins og mikilli fækkun starfa í byggingariðnaði í kjölfar ofþenslunnar á þeim markaði á undanförnum árum," segir í frétt Samtaka atvinnulífsins.
Mest lesið Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Viðskipti innlent Kvartanir berast í hverri viku vegna gjafabréfa Neytendur Skellir í vél á morgnana og nokkuð ánægð með sjálfan sig í gjafavali Atvinnulíf Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Neytendur Eldsneytisverð lækkar um tæplega hundrað krónur á nýju ári Neytendur Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Viðskipti innlent Rukkaðar fyrir sætin: Blöskrar græðgi vertsins, sem segir gjaldið sjálfsagt Neytendur Lengja opnun, gleðja starfsfólk og spara peninga Neytendur Allir héldu stjörnunni og Óx fékk eina græna til Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Edda Rós til Hagstofunnar Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ 15 ára afmæli kynjakvóta: „Langt frá því að vera fyrirmyndarríkið sem við teljum okkur vera“ Tinna nýr framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs hjá Innnes „Enginn í Lottu er á mannsæmandi launum“ Tekur við þjálfun kokkalandsliðsins Brú Talent kaupir Geko Consulting Halli hins opinbera minnkaði um 39 milljarða Sjá meira