Sex milljarða króna sala Guðbjargar í Glitni til rannsóknar 22. október 2009 18:30
Sérstakur saksóknari rannsakar um sex milljarða króna sölu Guðbjargar Matthíasdóttur, aðaleiganda Morgunblaðsins, á hlut í Glitni þremur dögum fyrir þjóðnýtingu bankans. Guðbjörg var sú eina af tuttugu stærstu hluthöfum Glitnis sem seldi hlut sinn í vikunni fyrir þjóðnýtinguna. Hún átti innan við tveggja prósenta hlut, en seldi hann allan föstudaginn 26. september og fékk um sex milljarða króna fyrir. Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson, sem hefur verið helsti ráðgjafi Guðbjargar í viðskiptum á undanförnum árum sagði þá í samtali við fréttastofu, að tímasetningin hefði verið hrein tilviljun. Glitnir hefði keypt hlut hennar í Tryggingarmiðstöðinni í september árið 2007 og þá hafi verið gerður söluréttarsamningur um hlutinn. Hann hafi gilt í eitt ár og etir því sem fréttastofa kemst næst átti hún rétt á því að selja helming hlutar síns á genginu 32,18 og hinn helminginn á gengi dagsins. Hún kaus að selja þennan dag þrátt fyrir að gengið á bréfunum hefði aldrei verið jafn lágt, eða 15,9. Fjármálaeftirlitið rannsakaði söluna í nokkurn tíma og sendi það svo til sérstaks saksóknara í sumar. Rannsóknin mun vera á byrjunarstigi. Guðbjörg hefur verið í hópi auðugustu Íslendinga undanfarin ár. Hún er aðaleigandi Ísfélagsins í Vestmannaeyjum og er stærsti hluthafinn í Þórsmörk, útgáfufélagi Morgunblaðsins. Frá þessu var fyrst greint á pressan.is
Mest lesið Ölgerðin hækkar verðin Neytendur Þúsund manna hátíðir ekkert mál en ein lítil kónguló skelfileg! Atvinnulíf Segir sjaldan hafa verið auðveldara að vera fyrsti kaupandi Neytendur Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Viðskipti innlent Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Viðskipti innlent Kynntust í janúar og kynna nýja lausn fyrir matvælaframleiðendur Atvinnulíf Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Viðskipti innlent Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Sjá meira