Viðskipti innlent

Launavísitala hækkaði um 0,3% frá fyrri mánuði

Launavísitala í september 2009 er 359,0 stig og hækkaði um 0,3% frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 1,9%.

Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að vísitala kaupmáttar launa í september 2009 er 105,3 stig og lækkaði um 0,5% frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa lækkað um 8,0%.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×