Viðskipti innlent

Íbúar Garðabæjar taka þátt í fjárhagsáætlun bæjarins

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar boðar til fundar með íbúum bæjarins miðvikudaginn 11. nóvember nk. Á fundinum fá allir Garðbæingar tækifæri til að hafa áhrif á gerð fjárhagsáætlunar bæjarins fyrir árið 2010. Þetta er í fyrsta sinn sem boðað er til almenns íbúafundar í tengslum við vinnu við fjárhagsáætlun.

Í tilkynningu segir að á fundinum vill bæjarstjóri upplýsa íbúa um fjárhagslega stöðu bæjarins og leita eftir tillögum þeirra um hvernig rétt sé að bregðast við fyrirsjáanlegum samdrætti í tekjum á næsta ári.

„Sveitarfélög horfa fram á 5-10% lækkun tekna á næsta ári. Við þessari tekjulækkun verður að bregðast í fjárhagsáætlun. Mér finnst mikilvægt að bæjarbúar fái tækifæri til að taka þátt í þeirri umræðu og koma sínum sjónarmiðum á framfæri," segir Gunnar.

Hann segist sannfærður um að bæjarbúar búi yfir mörgum góðum hugmyndum um hvernig hægt sé að hagræða í rekstri bæjarins. Hann vilji því leita til þeirra; bæði til að heyra hugmyndir til sparnaðar en einnig til að heyra hvar íbúar vilja alls ekki að sparnaðurinn komi fram.

Á fundinum kynna bæjarstjóri, endurskoðandi bæjarins frá KPMG og fjármálastjóri Garðabæjar starfsemi bæjarins og fjárhagslega stöðu. Reiknað er með að kynningarnar taki í allt um hálftíma. Að kynningum loknum verður unnið í minni hópum þar sem fundargestum gefst tækifæri til að koma sínum sjónarmiðum á framfæri. Hópstjóri leiðir umræðuna í hverjum hóp og allir fá tækifæri til að koma sínum tillögum að.

Allar hugmyndirnar sem koma fram verða hafðar til hliðsjónar við gerð fjárhagsáætlunar.

Að fundinum loknum verður jafnframt opnað fyrir ábendingaform á vef Garðabæjar þar sem bæjarbúar geta haldið áfram að senda inn tillögur til hagræðingar í rekstrinum. Niðurstöður umræðna verða einnig birtar á vefnum.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×