FME gerði athugasemdir við eignastýringu VBS 3. febrúar 2009 15:19
Fjármálaeftirlitið (FME) gerði athugasemdir við ófullnægjandi upplýsingar VBS Fjárfestingarbanka (VBS) til viðskiptavina um áhættu tengda einstökum fjármálagerningum. Á vefsíðu FME segir að athugun var gerð á eignastýringarsviði VBS með heimsókn þann 15. ágúst 2008. Athugunin beindist fyrst og fremst að starfsháttum á eignastýringarsviði, framfylgd laga og reglna á sviði eignastýringar, fjárfestavernd og upplýsingum til viðskiptavina eignastýringarsviðs. FME gerði athugasemdir við aðferðir við mat og samanburð á árangri fyrirtækisins og möguleikum viðskiptavina til að meta slíkan árangur út frá fyrirfram tilgreindum viðmiðum í samræmi við reglugerð. FME gerði ennfremur athugasemdir við að á yfirlitum yfir viðskipti og stöðu safna viðskiptavina var ekki að finna upplýsingar um heildarfjárhæð þóknana og gjalda sem stofnað var til á tímabilinu með sundurliðun á þóknunum og kostnaði. Þá var ekki að finna yfirlit yfir heildarfjárhæð arðgreiðslna, vaxta og annarra móttekinna greiðslna á skýrslutímabilinu. FME benti á að hætta væri á hagsmunaárekstrum, bæði á milli viðskiptavina bankans innbyrðis og á milli bankans og viðskiptavina hans, við kaup eignastýringarsviðs á veðskuldabréfum útgefnum af viðskiptavinum bankans. Fjármálaeftirlitið benti einnig á mikilvægi þess að upplýsa viðskiptavini bankans um ýmsa þætti í tengslum við þessi viðskipti. FME gerði athugasemdir við að eftirliti með fjárfestingastefnu og framkvæmd hennar væri ábótavant eftir könnun á viðskiptamannayfirlitum, hreyfingalistum og eignastýringarsamningum ákveðins úrtaks viðskiptavina og samanburð við fjárfestingastefnu þessara aðila. Þá mæltist FME til þess að VBS setji sér skriflegar viðmiðunarreglur um hvaða starfsmenn skuli hafa lokið prófi í verðbréfaviðskiptum. Bent var á að upplýsingar á heimasíðu VBS væru misvísandi og mikilvægi þess að slíkar upplýsingar séu skýrar og lýsi vel þeirri þjónustu sem í boði er fyrir fjárfesta. Bent var á að bæta mætti aðskilnað á milli starfssviða. FME taldi fyrirkomulag við verðbréfaviðskipti starfsmanna viðunandi, en beindi þeim tilmælum til félagsins að endurskoða reglurnar m.t.t. gildistöku nýrra laga um verðbréfaviðskipti. Allir starfsmenn í eignastýringu eru með hljóðritaðan síma en FME gerði athugasemdir við að einnig væru notaðar samskiptaleiðir sem ekki væru rekjanlegar s.s. farsímar og MSN samskiptaforrit við móttöku fyrirmæla um verðbréfaviðskipti og eignastýringarsamninga.
Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Sjá meira