Meirihluti félaga í Viðskiptaráði hlynntur ESB-aðild 3. febrúar 2009 14:12
Meirihluti aðildarfélaga í Viðskiptaráði er hlynntur því að Ísland sæki um aðild að Evrópusambandinu. Stuðningur við ESB hefur því aukist umtalsvert hjá félögum ráðsins, en samkvæmt könnun frá því í janúar 2008 var þriðjungur aðildarfélaga hlynntur aðildarumsókn á kjörtímabilinu. Um tveir þriðju þátttakenda í könnuninni nú eru þeirrar skoðunar að ESB umsókn hefði jákvæð áhrif á núverandi stöðu efnahags! mála. Í tilefni af Viðskiptaþingi sem halda átti 4. febrúar 2009 kannaði Viðskiptaráð hug aðildarfélaga til afleiðinga bankahrunsins á rekstrarstöðu fyrirtækja þeirra, stöðu stjórnsýslu, aðgerða til úrbóta og afstöðu til Evrópusambandsaðildar. Vegna stjórnmálalegra aðstæðna og óvissu var Viðskiptaþingi frestað fram í mars, en rétt þótti að birta niðurstöður könnunar Viðskiptaráðs fyrr þannig að þær gætu nýst til leiðsagnar í umbótastarfinu sem nú er brýnt að eigi sér stað. Í könnuninni kemur fram að afleiðingar hruns íslensku viðskiptabankanna í október 2008 koma nú æ betur í ljós. Fjöldi fyrirtækja hefur þegar lent í verulegum rekstrarvandræðum. Ríflega helmingur þátttakenda í könnun Viðskiptaráðs telur að rekstrarstaða sinna fyrirtækja eigi enn eftir að versna á næsta hálfa árinu, með tilheyrandi fækkun starfsfólks. Meginástæður erfiðleika í rekstri nú röktu aðildarfélagar Viðskiptaráðs til falls krónunnar, hás vaxtastigs, samdráttar í eftirspurn og takmarkaðs aðgangs að lánsfé. Að mati flestra þátttakenda hafa stjórnvöld ekki gert nóg til að koma til móts við fyrirtæki í erfiðu rekstrarumhverfi, þrátt fyrir að það sé metið svo að þau hafi haft til þess nokkuð svigrúm. Engu að síður má ljóst vera að staða ríkissjóðs sé þröng um þessar mundir og á enn eftir að þrengjast. Það sem enn eykur á vanda fyrirtækjanna eru að hnökrar virðast vera á þjónustu nýju bankanna, sem stór hluti félagsmanna segir hafa versnað frá því í sem hún var fyrir október 2008. Það er athyglisvert að stærri fyrirtæki og fyrirtæki sem eru í alþjóðlegri starfsemi eru líklegri en önnur til að telja þjónusta bankanna hafa versnað. Það er auðséð af svörum aðildarfélaga að breytinga var þörf hjá ríkisstjórn og í stjórnsýslu. Fleiri en 9 af hverjum 10 þátttakendum töldu nauðsynlegt að stokka upp í ríkisstjórninni eða gera mannabreytingar hjá Seðlabanka og Fjármálaeftirliti. Með þeim breytingum sem síðustu daga hafa orðið á ríkisstjórn og í lykilstofnunum er verið að koma til móts við almenna kröfu um breytingar. Mögulegt er að mikill órói í samfélaginu og ofangreindar breytingar á stjórnarsamstarfi kunni að hafa breytt afstöðu aðildarfélaga til kosninga á árinu frá því sem var er könnuninni var lokað 20. janúar síðastliðinn. Horf t til skemmri tíma töldu þátttakendur mikilvægast að bæta aðgengi að fjármagni, aðallega í formi vaxtalækkana og með því að hið opinbera örvi atvinnulíf með auknu framkvæmdum. Einnig er talið aðkallandi að fram komi raunverulegur stuðningur við lífvænleg fyrirtæki. Til lengri tíma lögðu þátttakendur áherslu á að það þurfi að taka upp annan gjaldmiðil en íslensku krónuna. Flestir vilja taka upp evru, sumir strax en aðrir í kjölfar aðildar að ESB. Einstaka þátttakandi nefnir aðra kosti, eins og til dæmis bandaríkjadollar.
Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Sjá meira