Vilja láta afturkalla ákvörðun um greiðslustöðvun BG Holding Guðný Helga Herbertsdóttir skrifar 19. febrúar 2009 19:30
Smærri kröfuhafar Baugs krefjast þess að skilanefnd Landsbankans afturkalli ákvörðun sína um að setja BG Holding í greiðslustöðvun.Greiðslustöðvunin hefur úrslitaárhif á að kröfuhafarnir fái rúmlega 50 milljarða króna kröfur sínar á Baug greiddar. Gangi þetta ekki eftir, yrðu afleiðingarnar afdrifaríkar fyrir íslenskt fjármálakerfi. Fulltrúar Byrs, VBS fjárfestingarbanka, Straums, SPRON, Sparisjóðabanka Íslands, Íslenskra verðbréfa, Saga Capital, LSR og Gildis funduðu í húsakynnum Byrs í Borgartúninu í dag. Þessi fjármálafyrirtæki og lífeyrissjóðir eiga óöruggar veðkröfur á Baug sem nema 51 milljarði króna. Forsvarsmenn Baugs höfðu áður búið til áætlun, Project Sunrise, sem miðaði að því að greiða kröfuhöfum félagsins að fullu en eftir að skilanefnd Landsbankans fór fram á greiðslustöðvun BG Holding, dótturfélag Baugs í Bretlandi, breyttust forsendur og gildir áætlunin því ekki lengur. Heimildir fréttastofu herma að kröfuhafarnir hafi á þessum fundi skrifað bréf til skilanefndarinnar þar þess er farið á leit að ákvörðun um gjaldþrotameðferð BG Holding verði afturkölluð. Hagsmunir kröfuhafanna séu verulegir fyrir íslenskt fjármálakerfi í heild sinni. Skilanefnd Landsbankans hafi með þessum aðgerðum tryggt sig umfram skuldbindingar sínar og þar með sett þær kröfur sem smærri fjármálafyrirtæki eiga á Baug í uppnám. Þar sem Landsbankinn eigi veð í stærstum hluta eigna Baugs og hafi því leiðandi stöðu þegar komi að endurskipulagningu á fjárhag félagsins munu aðgerðir af hálfu skilanefndarinnar hafa úrslitaárhif á endurheimt krafna ótryggðra kröfuhafa. Heimildir fréttastofu herma einnig að kröfuhöfum verði innan skamms kynntar þær tillögur um nýja fjárhagsskipan Baugs sem samþykkt var á stjórnarfundi fyrr í vikunni.
Mest lesið Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Viðskipti innlent Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Viðskipti innlent Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Viðskipti innlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Ástarsaga: Markmiðið að allir verði ástfangnir af LOVE Atvinnulíf Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Viðskipti innlent Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Samstarf Fleiri fréttir Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Sjá meira