Viðskipti innlent

Útlán nýju ríkisbankanna yfir leyfilegu hámarki

Útlán nýju bankanna til nokkurra einstaklinga og fyrirtækja eru yfir leyfilegu hámarki. Það þýðir að skuldir einstakra aðila geta numið 50 milljörðum eða meira. Forstjóri fjármálaeftirlitsins segir unnið að því að laga þetta.

Fjármálaeftirlitið birti í nóvember stofnefnahagsreikning nýju bankanna. Ríkið mun leggja Nýja Kaupþing til 75 milljarða, Nýja Glitni 110 milljarða og NBI, nýja Landsbankum, 200 milljarða. Þetta nýja eigið fé mun verða sett inn í bankanna um leið og verðmati á nýju bönkunum er lokið.

Þegar bönkunum var skipt upp í innlenda og erlenda starfsemi fluttust skuldir innlendra fyrirtækja og einstaklinga yfir í nýju bankanna.Lög kveða á um að útlán til einstakra aðila eða fyrirtækja mega ekki vera yfir 25% af eigin fé bankans. Fréttastofa hefur heimildir fyrir því að nokkur útlán sem fluttust yfir í nýju bankanna þegar bönkunum var skipt upp séu yfir þessu 25% marki. Það þýðir að ákveðnir einstaklingar eða fyrirtæki skulda nýja Kaupþing tæpa 19 milljarða eða meira, nýja Glitni 27,5 milljarð eða meira og NBI 50 milljarða eða meira.

Jónas Fr. Jónsson, forstjóri Fjármálaeftirlitsins, segir að hægt sé að sækja um frest til þess að koma þessu í lag. Nú þegar hefur Fjármálaeftirlitinu borist slíkar umsóknir. Jónas segir að fleiri möguleikar séu í stöðunni.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×