Rannsaka hvort Kaupþing hafi átt of mikið í sjálfum sér 23. október 2009 18:30
Kaupþing fjármagnaði um helming af bréfum í bankanum með lánveitingum til viðskiptavina og starfsmanna bankans. Sérstakur saksóknari rannsakar nú hvort bankinn hafi með beinni eða óbeinni eignaraðild átt meira í sjálfum sér en lög kveða á um. Yfirlýst stefna Kaupþings var að starfsmenn ættu um 9% í bankanum. Um 130 starfsmenn fengu tæplega 50 milljarða að láni til að kaupa bréfin Þá fengu viðskiptavinir og eigendur bankans geigvænlegar upphæðir lánaðar, m.a. til að hlutabréfakaupa í bankanum. Nokkrir af stærstu eigendum bankans áttu um 47% af bankanum um tíma en hlutaféð var að stórum eða öllum hluta fjármagnað af Kaupþingi. Hér er þó ekki tekið tillit til stærsta eigenda Kaupþings, Existu, sem átti um 24,7% hlut. Félagið sjálft skuldaði bankanum um 140 milljarða íslenskra króna en ekki er ljóst hversu mikið eða hvort eitthvað af því láni fór í að fjármagna hlutabréfakaup í bankanum. Oftar en ekki voru einkahlutafélög skráð fyrir kaupunum og þá var einnig algengt að einu veðin fyrir lánunum væru í bréfunum sjálfum. Í lögum um fjármálafyrirtæki kemur fram að fjármálafyrirtæki megi ekki án samþykkis Fjármálaeftirlitsins eiga eða taka að veði eigin hlutabréf sem eru hærri en 10% af hlutaféi fyrirtækisins. Sérstakur saksóknari rannsakar nú hvort að bankinn hafi átt meira í sjálfum sér en lögin kveða á um. Er þá einnig litið til óbeinnar eignaraðildar en bankinn telst vera óbeinn eigandi sinna eigin bréfa í gegnum veðréttinn. Það mun vera sjálfstætt brot að fara yfir 10% mörkin en ástæða þess að það var gert getur fallið undir markaðsmisnotkun.
Mest lesið Ölgerðin hækkar verðin Neytendur Segir sjaldan hafa verið auðveldara að vera fyrsti kaupandi Neytendur Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Viðskipti innlent Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Viðskipti innlent Kynntust í janúar og kynna nýja lausn fyrir matvælaframleiðendur Atvinnulíf Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Viðskipti innlent Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Viðskipti innlent Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Viðskipti erlent Fleiri fréttir Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Sjá meira