Fengu verkefni þrátt fyir að uppfylla ekki skilyrði 23. febrúar 2009 19:17
Tiboði HBH, verktakafyrirtækis í meirihlutaeigu Róberts Wessman, stærsta styrktaraðila Háskólans í Reykjavík, í verk við nýbyggingu skólans hefur verið tekið. Fyrirtækið uppfyllir ekki útboðsskilmála þar sem það er í vanskilum með lífeyrissjóðsiðgjöld. Byggingarvinna við nýbyggingu Háskólans í Reykjavík í Öskjuhlíð hófst í desember 2007. Byggingin þykir með þeim glæsilegri og komu danskir arkitektar frá Henning Larsens að hönnuninni. Nýlega var boðið út verk sem snýr að innihurðum í allt húsið, um 600 talsins. 12 aðilar skiluðu inn tilboðum og var tilboði HBH framkvæmda ehf tekið. Fyrirtækið var með þriðja lægsta boð eða 118 milljónir. Þau fyrirtæki sem voru með lægri boð gerðu ráð fyrir erlendu vinnuafli og gengistryggingu og voru þess vegna valin frá. HBH er í meirihlutaeigu Salt Constructions sem er dótturfélag Salt Investments. Það félag er í eigu Róberts Wessman en hann lagði fram 1 milljarð króna sem hlutafé og framlag í Þróunarsjóð Háskólans í Reykjavík. Í útboðsgögnum frá eignarhaldsfélaginu Fasteign hf sem sér um byggingu, fjármögnun og eignarhald byggingarinnar, kemur fram að ef bjóðandi sé í vanskilum með lífeyrissjóðsiðgjöld starfsmanna verði ekki gengið til samninga við hann. Samkvæmt gögnum sem fréttastofa hefur undir höndum hefur íslenski lífeyrissjóðurinn birt greiðsluáskorun á HBH framkvæmdir. Þá er vanskilaskrá fyrirtækisins þrjár A-4 síður auk þess sem líkur á fyrirtækið geti ekki staðið í skilum eru 77%. HBH hefur áður fengið verk í nýbyggingu HR en það var í tengslum við endurbyggingu á Nauthól veitingastaðnum sem er tengdur háskólanum. Það verk er upp á tæpar 200 milljónir. Framkvæmdastjóri HBH sagði í samtali við fréttastofu að ekki hafi verið skrifað undir verksamning. Hann segir unnið að endurfjármögnun fyrirtækisins og að það muni uppfylla útboðsskilyrði áður en skrifað verði undir verksamning. Róbert Wessman sagði í samtali við fréttastofu að hann vissi lítið um málið og benti á samstarfsfélaga sína.
Mest lesið Gervigreindin geti verið lykillinn að tollalækkun Viðskipti innlent Besti fjórðungurinn í sögu Alvotech Viðskipti innlent Hætt sem framkvæmdastjóri Klíníkurinnar Viðskipti innlent Óskar eftir starfslokum Viðskipti innlent Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Óskar úr fjarskiptum í fiskinn Viðskipti innlent Stækka hótelveldið á Suðurlandi Viðskipti innlent Sögulegur hagnaður á samrunatímum Viðskipti innlent Íslensku KFC-feðgarnir í Danmörku gjaldþrota Viðskipti erlent Slugsagjöldin „neyðarúrræði“ og „ekki til að græða“ Neytendur Fleiri fréttir Gervigreindin geti verið lykillinn að tollalækkun Besti fjórðungurinn í sögu Alvotech Sögulegur hagnaður á samrunatímum Óskar úr fjarskiptum í fiskinn Hætt sem framkvæmdastjóri Klíníkurinnar Lægri tollar á samkeppnisríkin veiki stöðuna svo um munar Atvinnuleysi eykst hægt með lækkandi sól Almannatenglar stofna fjölmiðil Lánshæfið hækkar úr stöðugu í jákvætt Fleiri ferðamenn og fleiri utanlandsferðir Skilur ekkert í stjórnvöldum að hafa ekki stöðvað „græðgisvæðingu“ í bílastæðamálum Stækka hótelveldið á Suðurlandi Óskar eftir starfslokum „Ekkert Viking eða Gull“ á nýjum stað í B5 Segir ofboðslegan undirliggjandi þrýsting á fasteignamarkaði Reikna með að skila hagnaði á næsta ári Frá Gamma til Arctica og nú Seðlabankans Atvinnuleysi 2,8 prósent í júní Trump-tollarnir hafa tekið gildi Ísland klemmist á milli í alþjóðlegu tollastríði Vonbrigði með makrílinn en síldin og loðnan veki von Ráðin framkvæmdastjóri Magio – viðburðasmiðju Trúa varla að tollahækkanirnar séu að skella á Alaska Airlines hefur daglegt flug til Keflavíkur næsta sumar Vefur og app Íslandsbanka lágu niðri Tímabundin dreifing á sjónvarpsefni Sýnar hjá Símanum Hækkun tolla eins og þruma úr heiðskíru lofti Forstjóraskipti hjá Ice-Group Kísiltollar gætu vel endað fyrir gerðardómi Hvalur hf. stefnir íslenska ríkinu Sjá meira