FME byggði upplýsingagjöf um bankana á staðreyndum 3. febrúar 2009 10:24
Fjármálaeftirlitið (FME) lagði sig fram við að sinna upplýsingabeiðnum til erlendra aðila um íslenska bankakerfið og veita þær upplýsingar sem hægt var innan ramma laga og var lögð áhersla á að setja fram staðreyndir. Hafi upplýsingarnar byggt á tölulegum staðreyndum hverju sinni. Þetta kemur fram á vefsíðu FME. Þar segir að ýmsir aðilar hafa tjáð sig að undanförnu um samskipti Fjármálaeftirlitsins við erlenda aðila. Því hefur verið slegið fram að Fjármálaeftirlitið hafi verið í hlutverki klappstýru og verndað bankana fyrir erlendri gagnrýni. Síðan segir: „Fjármálaeftirlitið leitast við að gefa bestu fáanlegar upplýsingar um starfsemi sína og íslenskan fjármálaþjónustumarkað og hefur byggt upplýsingagjöf sína til erlendra aðila á tölulegum staðreyndum hverju sinni sem og gildandi lögum. Bankarnir stækkuðu hlutfallslega mest á árunum 2004-2005, meðal annars vegna kaupa á erlendum dótturfélögum. Í samræmi við aukna erlenda starfsemi íslensku bankanna fór áhugi ýmissa erlendra aðila á Íslandi að aukast verulega árið 2006. Beiðnum um upplýsingar og fundi fjölgaði umtalsvert og lagði Fjármálaeftirlitið áherslu á að sinna þessum beiðnum af fagmennsku. Um var að ræða greiningaraðila, lánshæfismatsfyrirtæki, fjölmiðla og fjármálafyrirtæki. Fundir þessir voru að frumkvæði hinna erlendu aðila. Um var að ræða aðila sem komu til Íslands m.a. til þess að kynna sér aðstæður og hitta ýmsa aðila s.s. aðrar stofnanir, ráðuneyti og aðila á fjármálamarkaði. Fjármálaeftirlitið lagði sig fram við að sinna upplýsingabeiðnum og veita þær upplýsingar sem hægt var innan ramma laga og var lögð áhersla á að setja fram staðreyndir. Á fundunum var m.a. farið yfir þær áskoranir sem Fjármálaeftirlitið taldi að fjármálamarkaðurinn og fjármálafyrirtæki stæðu frammi fyrir, svo sem fjármögnun og þröngt eignarhald."
Mest lesið Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Sjá meira