HB Grandi: Úthafskarfinn gaf 1,5 milljarð í sumar 23. september 2009 15:38 Venus. Myndin er á heimasíðu HB Granda.
Úthafskarfaveiðar HB Granda í sumar gáfu af sér um 1,5 milljarð kr. miðað við verðmæti upp úr sjó. Fjallað er um veiðarnar á heimasíðu HB Granda og þar eru þær sagðar vera ágæt búbót. ,,Við getum ekki annað en verið mjög ánægðir með veiðar togaranna í sumar. Veiðarnar hafa gengið vel og það á við um svo til allar fisktegundir. Það er helst ýsan, sem gengið hefur treglega að veiða, en hún hefur lítið sést á þeim slóðum sem skipin okkar halda sig aðallega á," segir Birkir Hrannar Hjálmarsson, rekstrarstjóri togara HB Granda í viðtali á heimasíðunni. Að sögn Birkis Hrannars er mikil ánægja með það hvernig úthafskarfaveiðarnar þróuðust að þessu sinni. ,,Væntingar voru ekki mjög miklar vegna þess að vertíðin í fyrra var ákaflega döpur, svo ekki sé meira sagt. Undanfarin ár hefur karfinn úti á Reykjaneshryggnum gefið sig til frá því í byrjun maí og yfirleitt hefur veiðin ekki staðið lengur en fram í fyrstu vikuna í júlí," segir Birkir Hrannar. "Að þessu sinni voru veiðarnar stundaðar fram að mánaðamótum júlí og ágúst en þá luku skipin okkar við að veiða úthlutaðan kvóta. Við vorum með fjögur skip á þessum veiðum og heildaraflinn varð tæplega 6.800 tonn. Þetta er frábær búbót og vonandi benda aflabrögðin til þess að ástand stofnsins sé gott." Að lokinni úthafskarfavertíðinni fór Venus HF til veiða í rússneskri og síðan norskri lögsögu í Barentshafi og lauk við að veiða botnfiskkvóta HB Granda þar.
Mest lesið Heimsins fyrsti billjónamæringur Viðskipti erlent Stærstu afrekin að koma öllum út úr húsi á tíma Atvinnulíf Enn fjölgar aflýsingum Viðskipti innlent Samruni Paramount og Warner Bros samþykktur Viðskipti erlent Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Viðskipti innlent Sögulegri skráningu SpaceX lokið Viðskipti erlent Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Viðskipti innlent Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Viðskipti innlent Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Viðskipti innlent Alvöru þægindi eftir átján holur Samstarf Fleiri fréttir Enn fjölgar aflýsingum Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Ísland sjaldnast uppfyllt upptökuskilyrði fyrir evru Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Björgvin kjörinn nýr formaður FHG Festa og Gildi vilja sameinast Halli ríkissjóðs eykst um tugi milljarða milli ára Kanna hvort pottur hafi verið brotinn hjá Oculis Matvælaverð hafi hækkað minna en laun frá 2020 Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Skýrsla AGS: Aukin hætta á minni hagvexti og meiri verðbólgu Grátlegt hversu miklum peningum fólk tapar í fjársvikum Sjálfsafgreiðslukassarnir skili ekki lægra vöruverði Nýir kælar og kjúklingastaður í Lindunum eftir stærstu endurbætur Krónunnar Stjórnvöld geti gert miklu meira til að lækka matvöruverð Forstjóri Kviku hyggst láta af störfum Ráðinn staðarverkfræðingur Nýs Landspítala á Akureyri Uppsagnir hjá Brimi á Vopnafirði Hopp tekur rafræn ökuskírteini í notkun í appinu Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Sjá meira