Hefðu mátt seljast fleiri miðar 5. ágúst 2009 01:15 landsliðið Fjölskyldur landsliðskvennanna verða áberandi á áhorfendapöllunum í Finnlandi í lok mánaðarins. fréttablaðið/daníel „
Þetta er í fyrsta skipti sem íslenskt landslið kemst í lokakeppni stórmóts og því hefðu nú fleiri miðar mátt seljast. En svona er þetta bara, það er auðvitað kreppa og margir sem halda að sér höndum. Leikirnir verða líka sýndir í sjónvarpinu hér heima,“ segir Ragnheiður Elíasdóttir, ritari hjá Knattspyrnusambandi Íslands (KSÍ). Sambandið hefur selt á bilinu fjörutíu til sjötíu miða á hvern leik íslenska kvennalandsliðsins í riðlakeppni úrslitakeppni Evrópumótsins, sem hefst í Finnlandi hinn 24. ágúst næstkomandi. Að sögn Ragnheiðar samanstendur hópurinn sem festi kaup á miðum á leikina í riðlakeppninni mikið til af fjölskyldum landsliðskvennanna. „En það er líka nokkuð um að fyrrverandi landsliðskonur ætla að skella sér til Finnlands með dætrum sínum, og það er gaman að því. Svo er auðvitað alltaf einn og einn sem ætlar að fara vegna einskærs áhuga, en þeir mættu vera fleiri.“ Ef svo fer að landsliðið komist upp úr riðli sínum á mótinu mun KSÍ bjóða upp á miða á leiki í útsláttarkeppninni. „Ég er viss um að þeir miðar muni rjúka út. Við Íslendingar erum svolítið þannig að við lifnum við þegar vel gengur,“ segir Ragnheiður. Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari kvennalandsliðsins, tilkynnir 22 manna leikhópinn fyrir Evrópumótið á blaðamannafundi í hádeginu í dag.- kg
Mest lesið Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Innlent Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár Innlent Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Innlent „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Innlent „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Innlent Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Innlent Bandaríski sjóherinn vildi taka skip á leigu og gera út til Grænlands Erlent Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Innlent Fleiri fréttir Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sekta fyrir nagladekk eftir helgi Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Kjörbúðin lokar og ein verslun eftir í bænum Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Landskjörstjórn fellst á tillögur um nýtt orðalag Ekki áhyggjuefni að skipið sé á leið til Íslands „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Sjá meira