Bankaleynd á ekki að veraskjól markaðsmisnotkunar 5. ágúst 2009 02:30 ríkisstjórnarfundur í Stjórnarráðinu Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir ólíklegt að skuldabréf ríkissjóðs verði færð niður í svokallaðan ruslflokk. Vonast sé til að aðgerðir stjórnvalda undanfarið, til að eyða óvissu, dragi enn fremur úr líkum á því. fréttablaðið/anton
efnahagsmál Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir að það hafi komið sér gjörsamlega í opna skjöldu hve miklar fjárhæðir voru lánaðar til fárra aðila og hugsanlega án nægilegra veða. Það sé hins vegar ánægjulegt að Kaupþing skuli hafa fallið frá fráleitu lögbanni á fréttaflutning Ríkissjónvarpsins um lánabók Kaupþings sem lekið var á vefsíðuna Wikileaks.org í síðustu viku. Hún segir að ekki sé hægt að nota bankaleynd til að fela markaðsmisnotkun í samfélagi þar sem krafist er gegnsæis. Þetta kom fram á blaðamannafundi í Stjórnarráðinu í gær. Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra segir nauðsynlegt að endurskipuleggja umgjörð bankastarfsemi hérlendis. Þrengja verði skorður lánveitenda til að taka óbeina gengisáhættu með því að lána til innlendra aðila í erlendri mynt sem hvorki höfðu tekjur né eignir í erlendri mynt. Aðspurður segir Gylfi óeðlilegt að háar fjárhæðir séu lánaðar einungis með veðum í hlutabréfum eigin banka. Hugsanlega sé það ólöglegt en það sé annarra að skera úr um. Hann segir að í raun hafi verið búið til gervi-eigið fé með þessum lánveitingum. Það eigið fé sem skapað var með þessum hætti sé ekki að þjóna þeim tilgangi sem það á að þjóna. „Það þarf að koma í veg fyrir að hægt verði að endurtaka þennan leik.“ Nýtt frumvarp um bankaleynd verður lagt fyrir Alþingi í haust. Gylfi segir að það séu allar líkur á að farið verði eftir danskri fyrirmynd. Samkvæmt henni verður Fjármálaeftirlitinu veittur aðgangur að upplýsingum sem alla jafna falla undir bankaleynd. Fjármálaeftirlitið getur í kjölfarið miðlað þessum upplýsingum til annarra opinberra eftirlitsaðila, svo sem skattayfirvalda og samkeppniseftirlitsins. Gylfi segir að lögin eigi að tryggja skilvirkan aðgang að upplýsingum auk þess sem erfiðara verði að fela slóð afbrota. Hann segir æskilegt að fjallað sé um það sem fór úrskeiðis og bankaleynd eigi ekki að verða til þess að ekki verði fjallað um þau málefni. Hins vegar eigi að ríkja bankaleynd um málefni almennra viðskiptavina bankanna sem ekkert hafa brotið af sér. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir að glannalega hafi verið farið í lánveitingum bankanna. Meiri innbyggðir veikleikar hafi verið í fjármálakerfinu en menn vildu viðurkenna á sínum tíma. Hann nefnir að erlendir aðilar hafi varað við krosseignatengslum en nú hafi komið í ljós að tengslin hafi verið umfangsmeiri en nokkurn óraði fyrir. bta@frettabladid.is
Mest lesið Engin vettlingatök hjá Röggu þegar Mummi sökk í jökulvatn Innlent Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Erlent Réðust fyrirvaralaust á miðborg Beirút Erlent Hvenær verður hlaðvarp að fjölmiðli? Innlent Hormússund sagt lokað á ný Erlent Rex Heuermann játar að hafa myrt átta konur Erlent Stebbi Jak sýknaður af ákæru um líkamsárás Innlent Braut rúðu eftir að hafa verið synjað um starf Innlent Meirihluti þeirra sem taka afstöðu andvíg aðild að ESB Innlent Gagnrýna tvískinnung Vance í Ungverjalandi Erlent Fleiri fréttir Óvissa, ólögleg sala á áfengi og ósk um ný hljóðfæri Karlabyltingin hefst í Mosfellsbæ Stebbi Jak sýknaður af ákæru um líkamsárás Fyrsta pallborð fyrir kosningarnar í maí: Mosfellsbær á sviðið Dönsk þyrla með franskri herflutningavél til Íslands Bandaríkjaforseti gangi fram líkt og götustrákur Á brattann að sækja fyrir aðildarsinna Gífurlegir hagsmunir í húfi ef tæknin kemst í rangar hendur Vísindi á vordögum: Af hverju er offita enn þá vandamál? Hættuleg framþróun gervigreindarinnar, vopnahlé og kosningapallborð Töluverð skautun í málefnum Ísraels og Palestínu Engin vettlingatök hjá Röggu þegar Mummi sökk í jökulvatn Tveir fluttir á sjúkrahús eftir að eldur kviknaði í bílskúr Hvenær verður hlaðvarp að fjölmiðli? Braut rúðu eftir að hafa verið synjað um starf Næturlokunin komi sér afar illa fyrir fjölda íbúa Boða til mótmæla við bandaríska sendiráðið Meirihluti þeirra sem taka afstöðu andvíg aðild að ESB Gefur ekki mikið fyrir yfirlýsingar Trump um útrýmingu Íran Vinna áfram að alþjóðahöfn og iðnaðarsvæði í Finnafirði Hegðun Trumps vonbrigði Vitað um tíu dauðsföll af völdum eldinga hér á landi Kosningaspá Vísis: Lítill munur á vinstri og hægri í borginni Nýstaðinn upp þegar bárujárnið fauk inn um svefnherbergisgluggann Rafmagnslaust var í hluta Seltjarnarness og Vesturbæjar Skipverjar og hafnarverkamenn boða verkfall Harma að íbúar hafi verið í hættu við Fannborg Hótun um útrýmingu, ný kosningaspá og óvenjulegt þrumuveður Alvarlega slasaður eftir umferðarslys í Mývatnssveit Fyrstu merkin um kostnaðinn við stjórnarsetuna Sjá meira