Gistinóttum fækkar 5. ágúst 2009 09:35 101 Hótel.
Gistinætur á hótelum í júní síðastliðnum voru 147.900 en voru 155.800 í sama mánuði árið 2008. Þetta kemur fram hjá Hagstofunni og segir einnig að gistinóttum hafi fækkað í öllum landshlutum nema á Suðurlandi. Á Norðurlandi voru gistinætur svipaðar milli ára. Samkvæmt tölunum fækkaði gistinóttum hlutfallslega mest á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða, úr 14.700 í 12.300 eða um 17 prósent. Gistinóttum fækkaði einnig á Austurlandi úr 8.500 í 7.500 eða um rúm 12 prósent. Á höfuðborgarsvæðinu fækkaði gistinóttum um tæp 6%, úr 99.400 í 93.700. Á Norðurlandi voru gistinætur svipaður milli ára eða um 14.600. Þá er bent á að Suðurland er eini landshlutinn þar sem fjölgun gistinátta varð á milli ára. Þar fóru gistinætur úr 18.500 í 19.800 sem er um 7 prósenta aukning. Minnkandi hótelnotkun Íslendinga er skýringin á þessu en gistinóttum fækkaði um tæp 11 prósent milli ára meðal Íslendinga en fjöldi gistinátta erlendra ríkisborgara jókst um 4 prósent að því er segir á vef Hagstofunnar. Ef litið er til fyrstu sex mánaða ársins kemur fækkun einnig í ljós en gistinóttum fækkaði á því tímabili um tæp þrjú prósent miðað við sama tímabil árið á undan. „Gistinætur fyrstu sex mánuði ársins voru 568.300 en voru 584.300 á sama tímabili árið 2008," segir einnig í tilkynningu Hagstofunnar og er fjölgun á Suðurlandi um átta prósent og um þrjú prósent á Norðurlandi. Á öllum öðrum landsvæðum fækkaði gistinóttum, mest á Austurlandi um 18 prósent. „Fyrstu sex mánuði ársins fækkaði gistinóttum Íslendinga um 13% en gistinóttum erlendra ríkisborgara fjölgaði um 1% miðað við sama tímabil árið 2008," segir að lokum í tilkynningu Hagstofunnar.
Mest lesið Króuðu stolinn bíl af í Kömbunum eftir eftirför þvert yfir Hellisheiði Innlent Fundu spjótsodda alsetta gulli mörghundruð árum eldri en talið var mögulegt Erlent Hjólreiðamaður fluttur „mikið slasaður“ með sjúkraflugi Innlent Meiri ógn af smábátum í Karíbahafinu en Rússlandi Erlent Herflugvél snúið við í neyð Innlent Reiði vegna myndbands úr brúðkaupi Erlent Á fjórða hundrað gripa orðið fyrir vatnstjóni á Louvre Erlent Málaflokkurinn kosti sveitarfélögin milljarða Innlent Metþátttaka í golfsýningu Innlent Hættir á Spotify: „Ég er frjáls!“ Innlent Fleiri fréttir Króuðu stolinn bíl af í Kömbunum eftir eftirför þvert yfir Hellisheiði Hjólreiðamaður fluttur „mikið slasaður“ með sjúkraflugi Málaflokkurinn kosti sveitarfélögin milljarða „Verðum að vona að þessi þróun haldi áfram“ Áföllin hafi mótað sig Gramir að næstu göng á lista séu ekki á Austurlandi Herflugvél snúið við í neyð Mikið áhyggjuefni ef læknar komast ekki erlendis í sérnám Talsverður fjöldi uppfylli ekki lágmarkskröfur um netöryggi Ákvörðunin hafi einnig verið erfið fyrir stjórnarliðana Skortur á sérnámslæknum og ósáttir Austfirðingar Leggja til að lækka innviðagjaldið enn meira Katrín gerir upp áföllin og tekist á um samgönguáætlun Réðst á starfsmenn lögreglu Sameinist í baráttu um að fá risabor og gangaþrennu Gangi í berhögg við samninga að festa Reykjavíkurflugvöll í sessi Þrír handteknir fyrir hótanir og vopnalagabrot Hrossahjörð á brokki fram Álftanesveg Krefjast skýringa á boðuðum breytingum ráðherra á framhaldsskólum Sonur Ölmu Möller íhugar framboð Gefa út litlausa viðvörun Karlmaður handtekinn í tengslum við mannslát Vonast til að opna nýtt Konukot sem fyrst Ekki markmiðið að takmarka aðgengi fjölmiðla Óvænt breyting hækkaði lyfin um tugi þúsunda „Mér brá við að sjá þessa tölu“ Alltaf ljóst að Flokkur fólksins væri veiki hlekkurinn Hættir á Spotify: „Ég er frjáls!“ Reiknað með fjölmenni á jólamarkaði á Flúðum í dag Þórunn biðst afsökunar: „Bara mannleg eins og annað fólk“ Sjá meira