Icesave fer ekki óbreytt í gegnum þingið Ingimar Karl Helgason skrifar 5. ágúst 2009 18:49
Það er engin sátt um það á alþingi að frumvarp um ríkisábyrgð vegna Icesave skuldbindinga við Hollendinga og Breta fari óbreytt í gegnum þingið. Sumir stjórnarliðar eru ekki sáttir við núverandi texta og leita samkomulags við stjórnarandstæðinga um fyrirvara, sem meirihluti Alþingis geti sætt sig við. Ábyrgðin nemur hundruðum milljarða króna. Þess er vænst að eignir Landsbankans gangi upp í sem mest af skuldbindingum við Breta og Hollendinga. Alls ekki er víst hversu mikið fæst fyrir eignir bankans. Stjórnarliðar og stjórnarandstæðingar hafa undanfarið rætt um hvort ná megi þverpólitískri sátt um fyrirvara við Icesave samkomulagið og er skriður á málinu. Hátt settir menn í stjórn og stjórnarandstöðu halda um þræðina, en formlega er málið í höndum fulltrúa flokkanna sem sitja í fjárlaganefnd alþingis. Frumvarpið er þar til meðferðar og verður boðað til formlegs fundar í nefndinni, þegar menn hafa náð saman bak við tjöldin. Samkvæmt heimildum fréttastofu er meðal annars rætt um að setja þurfi fyrirvara um að Íslendingar geti látið reyna á lagalegan rétt og geti áskilið sér breytingar á samningum ef breytingar verða á reglum Evrópusambandsins um innistæðutryggingar. Þá þurfi fyrirvara um greiðslugetu Íslendinga og enn fremur fyrirvara um endurmat á því hvernig eignir Landsbankans eigi að skiptast milli Íslendinga annars vegar og Hollendinga og Breta hins vegar. Fari svo að samkomulag náist um ítrustu fyrirvara, segja heimildarmenn fréttastofu að jafnvel þyrfti að reyna semja við Hollendinga og Breta upp á nýtt. Formaður Framsóknarflokksins, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, segir að þingmenn verði að hafa fullvissu um að fyrirvarar við Icesave samkomulagið haldi gagnvart Bretum og Hollendingum. Öðruvísi náist aldrei meirihluti á Alþingi fyrir breytingum á samkomulaginu.
Mest lesið Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Innlent „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Innlent Spjótin beinast að syni Reiners Erlent Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Erlent Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Erlent Árásarfeðgarnir nafngreindir Erlent Úkraínumenn reiðubúnir til að falla frá aðild að Nató Erlent Sinntu fimmtán málum í tengslum við Iceguys tónleikana Innlent Komu sér fyrir í ruslageymslu og kveiktu þar eld Innlent Segir Reiner hafa verið myrtan vegna andúðar í sinn garð Erlent Fleiri fréttir Lögðu hald á sautján skotvopn og skotfæri um helgina Stór mál standa enn út af Í takt við það sem verið hefur Aðalsteinn gefur kost á sér í oddvitasæti og fer í leyfi Bein útsending: Kynna skýrslu um snjóflóðið í Súðavík Þurftu að lenda í Liverpool á leið til Manchester Súðavíkurskýrslan afhent forseta Alþingis Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Heyrði skothvellina á Bondi strönd Vinstri beygjan bönnuð Sinntu fimmtán málum í tengslum við Iceguys tónleikana „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Magnea sækist eftir 2.-4. sæti á lista Samfylkingar Komu sér fyrir í ruslageymslu og kveiktu þar eld Vinna að því að koma upp efnagreiningu í neyslurýmum Ekki mótfallin Fljótagöngum en ekki með nýrri forgangsröðun Fleiri lífeyrisþegar og leikskólaforeldrar sem þurfa jólaaðstoð „Mjög erfitt starf tilfinningalega“ Handtekinn með stóran hníf Leggja til að bókasafnsgreiðslur verði hækkaðar Íslendingur í Brown-háskóla: Oftast í tímum í sömu stofu og árásin var gerð Ekkert því til fyrirstöðu að Ísland taki þátt í drónakaupum Ekkert ákveðið varðandi framboð: „Ég er í tveimur flokkum“ Hálka þegar bíll valt í Biskupstungum Mikið myrkur þegar ekið var á konu á rafhlaupahjóli 270 íbúðir í byggingu í Þorlákshöfn Ástandið á bráðamóttökunni sýni viðkæmni kerfisins Segir Kristrúnu verja „lögbrot“ samráðherra síns Hryðjuverkaárás í Ástralíu og ástand í heilbrigðiskerfinu Sanna segir frá nýju framboði Sjá meira