Líkur á að lánshæfismat ríkissjóðs falli niður í rusl-flokk 16. júní 2009 12:19
Líkur eru á að lánshæfismat ríkissjóðs verði lækkað niður í einkunnina C sem þýðir rusl eða „junk" á alþjóðlegum lánsfjármarkaði. Slíkt myndi ekki létta róðurinn hjá íslenskum stjórnvöldum í baráttu þeirra við núverandi efnahagsvanda. Greining Íslandsbanka fjalar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir að lánshæfismat ríkissjóðs hefur verið á neikvæðum horfum hjá öllum lánshæfismatsfyrirtækjunum sem meta lánshæfi ríkissjóðs, S&P, Fitch Ratings, Moody´s og R&I síðan í byrjun þessa árs. Í kjölfar bankahrunsins voru lánshæfiseinkunnir ríkisjóðs fyrir skuldbindingar í erlendri mynt lækkaðar úr A flokk niður lægsta þrep B flokks. Núverandi einkunn er sú lægsta sem ríkisjóður hefur haft fyrir skuldbindingar sínar frá því að ríkisjóður byrjaði umsvif sín á alþjóðlegum fjármálamörkuðum fyrir 20 árum síðan. Í ljósi þess að hálft ár er nú liðið frá síðustu einkunnagjöf matsfyrirtækjanna fer líklega að líða að næstu endurskoðun en í kjölfarið mun koma í ljós hvort að ríkisjóður muni fá miðlungseinkunn sína staðfesta í bókum lánshæfismatsfyrirtækjanna eða hvort ríkisjóður falli niður um flokk og komist í hóp svokallaðra annars flokks lánshæfis eða spákaupmennskuflokk en á ensku eru skuldabréf sem falla í þennan flokk kennd við rusl og eru kölluð "junk bonds", að því er segir í Morgunkorninu. Nafnið dregur taum sinn af uppbyggingu einkunnakerfis lánshæfismatsfyrirtækjanna en einkunnir lægri en BBB og Baa endurspegla óviðunandi áhættustig og vafasama greiðslugetu. Sú einkunn sem ríkisjóður nýtur nú er því útpóstur þess sem getur kallast viðunandi áhætta. Erlend lántaka ríkissjóðs er um þessar mundir hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum annars vegar og vinveittum ríkisstjórnum hins vegar. Ríkissjóður er ekki að sækja neitt á alþjóðlegan lánamarkað enda er hann nánast lokaður. Skuldatryggingaálag íslenska ríkisins er nú afar hátt og hærra en finnst meðal annarra iðnvæddra ríkja. Álagið ber með sér að markaðsaðilar telja talsverðar líkur á því að ríkissjóður lendi í greiðslufalli. Í þessu umhverfi er lækkun lánshæfismats ríkissjóðs svo sem ekki annað en undirskrift lánshæfismatsfyrirtækjanna á skoðun markaðarins um að vafasama greiðslugetu ríkissjóðs. Lækkun lánshæfismatsins myndi hins vegar ekki gera róðurinn auðveldari litið lengra fram á veginn og ekki síst fyrir íslensk fyrirtæki og stofnanir sem þurfa á alþjóðlegri fjármögnun að halda. Það sem er mikilvægast í þessum efnum er skuldastaða ríkissjóðs og hversu miklar skuldbindingar ríkið þarf að taka á sig vegna bankahrunsins. Það er ljóst að skuldbindingar ríkisjóðs vegna Icesave munu ekki breyta miklu í bókum matsfyrirtækjanna þar sem þau gerðu strax í árslok ráð fyrir að skuldbindingar í kringum 600 milljarða kr. myndu falla á ríkissjóð vegna Icesave. Niðurstaða samningaviðræðnanna breytir því ekki skoðun þeirra á skuldastöðu ríkisjóðs. Samkvæmt skýrslum og rökstuðningi matsfyrirtækjanna frá því um síðustu áramót virðist stöðugleiki á gjaldeyrismarkaði vera meiri ógnun við framtíð lánshæfismatsins og hvernig það muni þróast enda hefur það mikla þýðingu fyrir skuldastöðu ríkisjóðs, fyrirtækja og heimila. Þá viðruðu lánshæfismatsfyrirtækin einnig áhyggjur sínar af þeim mikla þrýstingi sem væri til staðar á krónuna vegna krónubréfa og annarra eigna erlendra fjárfesta í íslenskum krónum. Í þessu sambandi er óhætt að hafa hóflegar áhyggjur af því að til frekari lækkunar lánshæfismatsins komi þar sem gengið er nú á svipuðum slóðum og í upphafi árs og verulega hefur dregið úr áhyggjum af útflæðisþrýstingi á þeim tíma sem nú liðinn frá síðustu endurskoðun.
Mest lesið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Viðskipti innlent Gætu lagt 757-þotunum í haust Viðskipti innlent Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Viðskipti innlent Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Viðskipti innlent Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Viðskipti innlent Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Viðskipti innlent Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Viðskipti innlent Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Fleiri fréttir Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Sjá meira