Eignir Stoða hafa lækkað um 200 milljarða kr. 23. janúar 2009 08:48
Eignir Stoða hafa nú lækkað um u.þ.b. 200 milljarða kr. síðastliðið hálft ár. Miðað við bráðabirgðamat á verðmæti eigna félagsins um sl. áramót er eigið fé Stoða neikvætt um 111 milljarða króna og því ljóst að gjaldþrot blasir við félaginu ef ekkert er aðhafst. Þetta kemur fram í tilkynningu sem Stoðir sendu frá sér í eftir að greiðslustöðvun félagsins var framlengd í gærdag. Þar er einnig greint frá fundi sem haldinn var með lánadrottnum þann 16. janúar s.l. Á fundinum lýstu stjórnendur Stoða þeirri skoðun sinni að gjaldþrot þjónaði ekki hagsmunum lánardrottna. Við gjaldþrot Stoða myndi rekstur félaga í eigu Stoða komast í uppnám og lægra verð myndi fást fyrir eignir félagsins. Stjórnendur Stoða hafa kynnt lánardrottnum drög að áætlun um endurskipulagningu fjárhags og reksturs Stoða. Áætlunin miðast við að hlutafé núverandi hluthafa verði afskrifað að öllu leyti og lánardrottnar breyti hluta skulda í hlutafé. Framlenging greiðslustöðvunarinnar gefur stjórnendum Stoða svigrúm til að vinna frekar að endurskipulagningu félagsins í nánu samstarfi við lánardrottna. Stjórnendur Stoða hafa átt fjölda funda með lánardrottnum en það hefur torveldað framgang að margir lánardrottnanna eru sjálfir í greiðslustöðvun eða gjaldþrotameðferð. Á undanförnum mánuðum hefur starfssemi Stoða verið takmörkuð, skrifstofu í London lokað og öllu starfsfólki sagt upp störfum. Síðustu vikur hafa 8 starfsmenn á uppsagnarfresti verið að störfum fyrir félagið.
Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Sjá meira