Viðskipti innlent

ÍLS kaupir skuldabréf fyrir 100 milljarða kr.

Nokkrar umsóknir hafa nú þegar borist til Íbúðalánasjóðs (ÍLS) þar sem óskað er kaupa á skuldabréfum en óljóst er á þessari stundu hver heildarfjárhæð kaupanna verður. Hún gæti þó orðið meir en 100 milljarðar kr..

Í tilkynningu um málið segir að með lögum í fyrra var Íbúðalánasjóði heimilað að kaupa skuldabréf af fjármálafyrirtækjum sem tryggð eru með veði í íbúðarhúsnæði. Í framhaldi af setningu laganna setti félagsmálaráðherra reglugerð um þessi fyrirhuguðu kaup. Þar kemur fram að endurgreiðslur fyrir skuldabréfin skuli að jafnaði vera í formi íbúðabréfa.

Vegna þessara fyrirhugaðra kaupa gerði Íbúðalánasjóður, við gerð fjárlaga fyrir árið 2009, tillögu um að hann fái heimildir til útgáfu íbúðabréfa til kaupa á skuldabréfum fyrir allt að 100 milljarða króna í þessu skyni.

Í greinargerð með fjárlagatillögum Íbúðalánasjóðs var gerður fyrirvari við þessa fjárhæð þar sem nokkur óvissa ríkir um heildarfjárhæð skuldabréfa sem Íbúðalánasjóði kunna að vera boðin til kaups. Því er ljóst að kaupin geta orðið minni eða meiri en fjárlögin gera ráð fyrir.

Íbúðalánasjóður vinnur nú að því að ganga frá samningum vegna þeirra umsókna sem þegar hafa borist sjóðnum og munu upplýsingar þess efnis verða tilkynntar til markaðsaðila þegar þær liggja fyrir.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×