Viðskipti innlent

Fyrrverandi stjórnarmenn í Glitni ætla að áfrýja

Fyrrverandi stjórnarmenn Glitnis hafa sent frá sér tilkynningu þess efnis að þeir muni áfrýja til Hæstaréttar dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í máli Vilhjálms Bjarnasonar gegn stjórninni vegna kaupa Glitnis á hlutabréfum Bjarna Ármannssonar í apríl 2007. Héraðsdómur komst í dag að þeirri niðurstöðu að greiða ætti Vilhjálmi, sem var hluthafi í bankanum, um tvær milljónir króna í skaðabætur.

Málið er talið fordæmisgefandi og sagðist Vilhjálmur áætla í samtali við Vísi í dag að stjórnarmennirnir gætu þurft að greiða alls 35 milljarða í skaðabætur til hluthafa bankans.

„Við teljum niðurstöðu Héraðsdóms í grundvallaratriðum ranga og ekki í samræmi við þær réttarreglur sem gilda á sviði félaga- og skaðabótaréttar," segir í yfirlýsingu stjórnarmannana fyrrvernadi. „Kaup bankans á umræddum hlutabréfum voru að auki innan samþykkta hluthafafundar bankans.

Við erum þess fullviss að dómnum verður hnekkt í Hæstirétti," segir einnig.

Stjórn Gliltnis skipuðu á þessum tíma þau Þorsteinn M. Jónsson, Björn Ingi Sveinsson, Haukur Guðjónsson, Jón Sigurðsson, Katrín Pétursdóttir, Pétur Guðmundsson og Skarphéðinn Berg Steinarsson.






Tengdar fréttir

Vilhjálmur hafði betur gegn Glitni

Vilhjálmur Bjarnason fjárfestir stefndi stjórn Glitnis vegna tillögu sem samþykkt var í stjórn bankans og veitti stjórninni heimild til að kaupa eigin hluti í félaginu. Kaupverðið skyldi vera lægst 10% og hæst 10% hærra en skráð kaup- eða sölugengi í Kauphöll Íslands. Málið snertir starfslok Bjarna Ármannssonar hjá bankanum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×