Segir vinstri sveiflu á Íslandi slæm tíðindi fyrir erlenda fjárfesta 23. janúar 2009 09:38
Beat Siegenthaler hefur verulegar áhyggjur af stjórnmálaástandinu á Íslandi og hættunni á því að hér komist vinstri stjórn til valda. Siegenthaler er sérfræðingur TD Securites í nýmörkuðum og hefur verið miðlari að stórum hluta þeirra krónubréfa sem enn eru útistandandi. Siegenthaler segir í fréttabréfi sínu að vinstri sveiflan á Íslandi boði ekkert gott fyrir viðskiptaheiminn. Nefnir hann sérstaklega þau orð Steingríms J. Sigfússonar formanns VG um að afþakka beri aðstoð Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. „Fyrir erlenda fjárfesta geta slíkar kringumstæður haft í för með sér fleiri neikvæðar óvæntar uppákomur í efnahags- og fjármálalífi landsins," segir Siegenthaler. Hann telur að pólitíkusar á Íslandi muni í auknum mæli falla í þá freistni að falla frá erlendum skuldbindingum sínum eins og Icesave sem myndi hafa víðtækar afleiðingar fyrir krónueignir. Og hann segir afar mikilvægt að stjórnvöld hérlendis eyði öllum vafa um að "Latín-Ameríkuleiðin" verði ekki farin. Siegenthaler nefnir að skuldatryggingarálagið á ríkissjóð hafi haldist nokkuð stöðugt í 950 punktum undanfarnar vikur. Utanmarkaðsgengi krónunnar hafi legið í 210-220 krónum fyrir evruna, á móti 165 kr. hjá Seðlabankanum. „Við teljum að jákvæður vöruskiptajöfnuður mun styrkja verulega við krónuna á heimamarkaði en andstæð pólitísk þróun gæti sett strik sitt á utanmarkaðsgengið," segir Siegenthaler.
Mest lesið Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Ástarsaga: Markmiðið að allir verði ástfangnir af LOVE Atvinnulíf Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Viðskipti innlent Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Viðskipti innlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? Samstarf Fleiri fréttir Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Sjá meira