Aðeins 15-23% af kröfum Seðlabankans munu innheimtast 23. janúar 2009 11:19 Árni Mathiesen fjármálaráðherra
Á þessi stigi liggur ekki nákvæmlega fyrir hvað innheimtast kann af þeim bréfum sem fjármálaráðuneytið keypti af Seðlabankanum fyrr í mánuðinum. Í áætlunum fjármálaráðuneytisins er gert ráð fyrir að 50 - 80 milljarðar kr. muni innheimtast eða 15-22% af kröfunum. Þetta kemur fram í vefriti ráðuneytisins. Ríkissjóður yfirtók í byrjun árs óvarin tryggingabréf vegna veð- og daglána Seðlabankans til innlendra fjármálastofnana að fjárhæð 345 milljarða kr. og greiddi fyrir með skuldabréfi útgefnu á Seðlabankann að fjárhæð 270 milljarða kr. Við fall gömlu bankanna féllu á ríkissjóð ýmsar skuldbindingar sem hann þarf að taka á sig. Má þar m.a. nefna stofnfjár- og eiginfjárframlag inn í nýju bankana og yfirtöku ótryggra tryggingabréfa vegna veð- og daglána Seðlabanka og verðbréfalána til aðalmiðlara ríkissjóðs. Áætlað er að eiginfjárframlag ríkissjóðs til nýju bankanna nemi 385 milljarðar kr. Ekki er gert ráð fyrir að fjármagna þurfi framlagið með því að sækja fé á markað heldur að ríkissjóður kaupi markaðshæf skuldabréf af Seðlabankanum og greiði fyrir þau með því að fella niður kröfu á Seðlabankann vegna áður veittra lána ríkissjóðs til styrkingar gjaldeyrisvaraforða Seðlabankans og með útgáfu skuldabréfs til bankans. Fyrir liggur að fjármagna þarf fjárþörf ríkissjóðs á árinu á innlendum markaði. Áformað er að gera það með því að nýta 100 milljarða kr. af innistæðum ríkissjóðs í Seðlabanka ásamt því að gefa út markaðsskuldabréf umfram innlausn skulda á gjalddaga fyrir um 45 milljarða kr. Á gjalddaga eru ríkisbréf fyrir um 71 milljarða kr. að nafnverði auk þess sem ráðgert er að innlausn ríkisvíxla umfram sölu nemi 29 milljörðum kr. Samtals eru því á innlausn 100 milljarðar kr. Ný útgáfa ríkisbréfa er því áætluð 145 milljarðar kr. Óbundnar innistæður ríkissjóðs í Seðlabanka Íslands námu um sl. áramót 172 milljarðar kr.
Mest lesið Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Viðskipti erlent Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Viðskipti innlent Kalla inn pylsur vegna prentvillu Neytendur Tók fimm mánuði að byrja að tala íslensku Atvinnulíf Hreiðar Már og Kristján Ara sleppa líklega undan ábyrgð Viðskipti innlent Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Viðskipti innlent Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Viðskipti innlent „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ Viðskipti innlent Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Viðskipti innlent Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Sjá meira