Viðskipti innlent

Seðlabankinn velur þröngu viðskiptavogina

Ákveðið hefur verið að breyta grunni einnar af fjórum gengisvísitölum Seðlabankans þannig að 2. janúar 2009 taki hún sama gildi og gengis­skrán­ingarvísitalan.

Samkvæmt frétt frá Seðlabankanum um málið segir að sú sem varð fyrir valinu nefnist gengisvísitala með þröngri viðskiptavog. Af vísitölunum fjórum er hún líkust gömlu vísi­tölunni að uppbyggingu.

Eins og áður hefur verið greint frá hætti Seðlabanki Íslands að reikna og birta svonefnda gengis­skráningarvísitölu nú um áramótin. Hins vegar verður haldið áfram að birta á heima­síðu bankans fjórar aðrar gengis­vísitölur svo sem gert hefur verið sl. tvö ár, sbr. frétt bankans frá 30. nóvember s.l..

Þröng viðskiptavog er reiknuð út frá vöruviðskiptum við öll lönd sem vega að minnsta kosti 1% í vöruviðskipum Íslands undangengin þrjú ár. Einnig er tekið tillit til hlutfalls ferðamennsku í þjónustu­við­skiptum. Skipting tekna af ferðamennsku er áætluð út frá landa­skipt­ingu gistinátta erlendra ferðamanna á hótelum og gistiheimilum, en gjöldin byggja á landaskiptingu kreditkortanotkunar Íslendinga erlendis.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×