SA: Of snemmt að fagna lokum kreppunnar 22. september 2009 10:09
Aljóðasamtök atvinnurekenda (IOE), sem Samtök atvinnulífsins (SA) eiga aðild að, hafa sent leiðtogum G-20 ríkjanna opið bréf þar sem þeir eru hvattir til þess að bæta starfsumhverfi fyrirtækja. Samtökin segja of snemmt að fagna lokum kreppunnar þó svo jákvæð teikn hafi sést á mörkuðum og vöxtur látið á sér kræla á ný. Fjallað er um málið á heimasíðu SA. Þar kemur fram að IOE segja aukin opinber útgjöld skýra þróunina en einkageirinn eigi enn í töluverðum vandræðum. Endurreisn efnahagslífsins byggi hins vegar á því að fyrirtækin nái sér á strik ekki útþenslu hins opinbera. Bréfið er skrifað vegna fundar G-20 ríkjanna sem fram fer í Pittsburgh í Bandaríkjunum 24.-25. september. Í bréfinu segja IOE að framtíðarhorfur í atvinnulífinu muni ráðast af þeim ákvörðunum sem leiðtogar öflugustu ríkja heims muni taka á næstunni og þær beri að vanda. IOE setja fram fimm áherslupunkta í bréfinu sem þau segja mikilvægt að leiðtogar ríkanna hugi vel að. Alþjóðasamtök atvinnurekenda leggja áherslu á að ráðist verði í nauðsynlegar umbætur á fjármálamörkuðum þannig að tryggt verði að fyrirtæki í venjulegum rekstri fái aðgang að nauðsynlegri fjármálaþjónustu. IOE hvetja til þess að reglubyrði verði ekki aukin þó svo gripið verði til viðeigandi ráðstafana. IOE hvetja jafnframt til þess að starfsumhverfi fyrirtækja verði bætt þannig að fólki verði gert auðveldara að stofna og reka fyrirtæki. Ekki megi draga úr athafnasemi með aukinni reglubyrði og hvetja verði til nýsköpunar með markvissum hætti. Lítil og meðalstór fyrirtæki (með 200 starfsmenn eða færri) verða að vera í forgrunni endurreisnar atvinnulífsins að mati IOE og telja samtökin að þau gegni lykilhlutverki. Við þær aðstæður sem nú ríki séu lítil og meðalstór fyrirtæki hins vegar sérstaklega viðkvæm og leita verði allra leiða til að tryggja þeim samkeppnishæft rekstrarumhverfi. Alþjóðleg verslun hefur dregist verulega saman frá því kreppan skall á og vara IOE við því að haftastefna og einangrunarhyggja nái að grafa um sig. Endurreisn alþjóðlegs efnahagslífs sé háð því að milliríkjaverslun nái sér aftur á strik. Síðast en ekki síst hvetja IOE til þess að sveigjanleiki á vinnumarkaði verði tryggður. Án hans verði leiðin til endurreisnar þyrnum stráð. IOE hvetja til þess að aðilar vinnumarkaðarins einbeiti sér að því að halda uppi atvinnustigi í stað þess að verja tiltekin störf.
Mest lesið Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Viðskipti innlent Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar Viðskipti innlent „Maður er reiður og sár“ Viðskipti innlent Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf Nýr framkvæmdastjóri Kalon Viðskipti innlent Verðhækkanirnar vonbrigði Viðskipti innlent Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Viðskipti innlent Gert að afhenda kúnnanum nýjan eyrnahreinsi með myndavél Neytendur Þórunn og Svali til Íslandsbanka Viðskipti innlent Uppsagnir fram undan og óttinn vex Atvinnulíf Fleiri fréttir Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Sjá meira