Lántaka Glitnis hjá Seðlabanka Evrópu á ekkert skylt við lögbrot 22. september 2009 10:46
Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri Samherja og fyrrverandi stjórnarformaður Glitnis, segir að Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra sé á villigötum þegar hann segi að hugsanlega hafi Glitnir framið lögbrot þegar bankinn lagði lán bankans til íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja að veði fyrir láni hjá Evrópska Seðlabankanum. Ummælin lét Jón falla í fréttum Stöðvar 2 á dögunum og krafðist ráðherrann svara frá fyrrum stjórnendum Glitnis. „Fullyrðing ráðherrans um hugsanlegt lögbrot er á misskilningi byggð," segir Þorsteinn Már. Hann bendir á að Íslenskum sjávarútvegsfyrirtækjum sé heimilt að taka lán beint hjá erlendum aðilum og hafi þau gert það í tugi ára. „Norskir bankar hafa í fjöldamörg ár, svo dæmi sé tekið, fjármagnað nýsmíðar íslenskra fiskiskipa í Noregi með fyrsta veðrétti í viðkomandi skipum." Þá segir Þorsteinn að á sama hátt sé íslenskum lánastofnunum heimilt að setja kröfur sínar á hendur íslenskum sjávarútvegsfyrirtækjum að veði til tryggingar skuldum sínum við erlenda aðila. „Komi til þess að erlendir aðilar þurfi að ganga að veðum í íslenskum fiskiskipum er þeim hinsvegar óheimilt að gera þau út og þurfa að selja þau innan tiltekins tíma." „Ríkisstjórn Íslands hefur á síðustu mánuðum staðið í viðræðum við kröfuhafa um hugsanlegt eignarhald þeirra á íslensku bönkunum," segir Þorsteinn Már ennfremur. „Verði það niðurstaðan að Kaupþing og Íslandsbanki verði að hluta til í eigu erlendra aðila þá verður það löglegt að viðkomandi bankar fjármagni íslenskan sjávarútveg, þrátt fyrir erlent eignarhald á þeim." Að lokum segir Þorsteinn að það sé Íslensku atvinnulífi nú mjög mikilvægt að eiga aðgang að erlendu lánsfé. „Það er sannfæring mín að þegar sjávarútvegsráðherra hefur kynnt sér málið til hlítar mun renna upp fyrir honum að viðskipti Glitnis við Seðlabanka Evrópu eiga ekkert skylt við lögbrot."
Tengdar fréttir Sjávarútvegsráðherra vill svör frá fyrrum stjórnendum Glitnis Fyrrverandi stjórnendur Glitnis brutu mögulega lög þegar þeir settu kvótaveð sem tryggingu gegn erlendu láni. Þetta er mat sjávarútvegsráðherra. 21. september 2009 11:59 Mest lesið Vara við afleiðingunum Viðskipti innlent Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Viðskipti innlent Möguleg endalok ferilsins: Hræðist að tapa fyrir eiginkonunni Atvinnulíf Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Viðskipti innlent Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Viðskipti innlent Þegar allt er að fara fjandans til… Atvinnulíf Leitað að fyrirmyndum í öryggismálum fyrirtækja Samstarf NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Viðskipti innlent Innkalla hrísgrjón vegna skordýraleifa Neytendur Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Vara við afleiðingunum NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Hermann framkvæmdastjóri Fálkans Ísmars Telur Þórð hafa misskilið en sama tala varð niðurstaðan Fjórar af hverjum fimm íbúðum seljast undir auglýstu verði: „Við höfum miklar áhyggjur“ Bundu nær allan koltvísýring og brennistein á Hellisheiði Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Íslandshótelum Ráðin markaðsstjóri Prís Saka Símann um undirboð með áskriftarpakka Opna nýtt kaffihús í Listasafni Reykjavíkur Svona er umhorfs í endurbættri fríhöfn Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Atli Þór til Almannaróms Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Færri tengifarþegar en fleiri komu til Íslands Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Sjá meira
Sjávarútvegsráðherra vill svör frá fyrrum stjórnendum Glitnis Fyrrverandi stjórnendur Glitnis brutu mögulega lög þegar þeir settu kvótaveð sem tryggingu gegn erlendu láni. Þetta er mat sjávarútvegsráðherra. 21. september 2009 11:59