Þór Sigfússon víkur formlega sem formaður SA 22. september 2009 15:07
Vilmundur Jósefsson hefur tekið við sem formaður Samtaka atvinnulífsins (SA)en Þór Sigfússon, sem verið hefur í leyfi frá formennsku í samtökunum frá 9. júlí, hefur ákveðið að víkja formlega úr sæti formanns SA. Fjallað er um málið á heimasíðu SA. Þar segir að nýr varaformaður verður kosinn á næsta stjórnarfundi SA í stað Vilmundar en formannskjör mun fara fram í aðdraganda aðalfundar SA vorið 2010. Í bréfi til Vilmundar, sem hefur frá því í sumar verið starfandi formaður SA, segir Þór að hann sé stoltur af því að hafa leitt öflug samtök á borð við SA og hugmyndavinnu um framsýna og áræðna atvinnustefnu. Þór þakkar stjórn SA og framkvæmdastjóra gott samstarf ásamt starfsfólki SA og aðildarsamtaka auk forystu ASÍ fyrir heilindi í samstarfi. Þór Sigfússon hefur stöðu grunaðs í rannsókn sérstaks saksóknara á málefnum tryggingarfélaginu Sjóvá en þar var Þór forstjóri á þeim tíma sem Milestone átti félagið. Sérstakur saksóknari kannar aðallega hvort stjórnendur Sjóvár hafi gerst sekir um umboðssvik og farið langt út fyrir heimildir í fjárfestingum. Slíkt getur varðað allt að sex ára fangelsi. Bréf Þórs má lesa í heild hér að neðan: „Hr. Vilmundur Jósefsson starfandi formaður SA Kæri vinur. Ég hef gegnt starfi formanns Samtaka atvinnulífsins frá því snemma árs 2008. Ég hef verið stoltur af því að leiða þessi öflugu samtök og þá hugmyndavinnu sem fram fór um framsýna og áræðna atvinnustefnu. Þegar rannsókn hófst á afdrifum Sjóvár vék ég úr sæti formanns tímabundið. Nú er ljóst að rannsóknin tekur lengri tíma en ég hugði og hef ég því tekið ákvörðun um að víkja formlega úr sæti formanns SA. Ég vil þakka stjórn SA gott samstarf. Þá vil ég sérstaklega þakka framkvæmdastjóra SA og frábæru starfsfólki SA og aðildarsamtaka fyrir einstaklega gott samstarf. Þá vil ég þakka forystu ASÍ, sem ég hef unnið með í störfum mínum hjá SA, fyrir heilindi í samstarfi. SA gegnir lykilhlutverki í endurreisn íslensks atvinnulífs. Við þurfum að nýta þau fjölmörgu tækifæri sem til staðar eru til að bæta lífskjör allra landsmanna. Ég mun ekki liggja á liði mínu í þeirri vinnu sem framundan er."
Mest lesið Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Viðskipti innlent Möguleg endalok ferilsins: Hræðist að tapa fyrir eiginkonunni Atvinnulíf Leitað að fyrirmyndum í öryggismálum fyrirtækja Samstarf Vara við afleiðingunum Viðskipti innlent Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Viðskipti innlent Innkalla hrísgrjón vegna skordýraleifa Neytendur Þegar allt er að fara fjandans til… Atvinnulíf Skordýraeitur á Pinkids eplum í öskju Neytendur Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Viðskipti innlent Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Vara við afleiðingunum NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Hermann framkvæmdastjóri Fálkans Ísmars Telur Þórð hafa misskilið en sama tala varð niðurstaðan Fjórar af hverjum fimm íbúðum seljast undir auglýstu verði: „Við höfum miklar áhyggjur“ Bundu nær allan koltvísýring og brennistein á Hellisheiði Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Íslandshótelum Ráðin markaðsstjóri Prís Saka Símann um undirboð með áskriftarpakka Opna nýtt kaffihús í Listasafni Reykjavíkur Svona er umhorfs í endurbættri fríhöfn Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Atli Þór til Almannaróms Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Færri tengifarþegar en fleiri komu til Íslands Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Sjá meira