Lækka þarf stýrivexti hratt og fljótt 10. febrúar 2009 12:19 Jón Daníelsson
Það þarf að lækka stýrivexti hratt og fljótt, segja hagfræðingarnir Jón Daníelsson og Gylfi Zoega í ritgerð um hrun íslenska hagkerfisins. Þeir segja ástæður þess að fjármálakerfið hrundi vera afnám hafta, einkavæðingu bankanna og slakt fjármálaeftirlit. Ritgerð þeirra kappa er skrifuð til að varpa ljósi á hvernig íslenska hagkerfið gat hrunið. Þar segir að rætur kreppunnar hér séu dýpri en í hinni alþjóðafjármálakreppu. Til dæmis hafi hagstjórn á Íslandi fremur byggst á brjósti en reglum og náin tengsl verið á milli fyrirtækja í einkageira og stjórnmálaflokka. Við einkavæðingu bankanna hafi þeir lent í höndum reynslulítilla manna sem nýttu sér gnægð lausafjár á alþjóðlegum mörkuðum. Skuldsetning varð mikil og kerfið byggði ekki upp nauðsynlegar varúðarráðstafanir. Seðlabankinn og Fjármálaeftirlitið fengu hvorki nægt sjálfstæði né stuðning frá yfirvöldum til að uppfylla skyldur sínar. Þegar bankakerfið var orðið níu sinnum stærra en íslenska þjóðarbúið hefðu menn átt að draga úr skuldasöfnun og endurskipuleggja bankana. Yfirvöld, segja Jón og Gylfi, gerðu hið gagnstæða. Þau hafi staðið hjá í þeirri von að óstöðugleikinn myndi hverfa. Afleiðingin, segja þeir, íslenska ríkið gæti, í versta falli, orðið gjaldþrota. Þeir furða sig á áhyggjuleysi yfirvalda í aðdraganda hrunsins. Enginn vafi leiki á að Fjármálaeftirlitið og Seðlabankinn hafi vitað hvað var að gerast. Sömuleiðis ráðherrar og yfirmenn fjármálaráðuneytis, viðskiptaráðuneytis, utanríkisráðuneytis og forsætisráðuneytis. Jón og Gylfi benda á ýmsar leiðir til að bæta stöðuna núna. Lækka þurfi vexti hratt og örugglega. Þeir mælast til þess að hópur óháðra hagfræðinga, sem starfa ekki hjá ríkinu, væri fenginn til að gefa álit á stöðu efnahagsmála tvisvar á ári. Það gæti minnkað líkur á að þjóðin færi sofandi að feigðarósi í annað sinn. Þá segja þeir að seðlabankastjórar, Fjármálaeftirlitið og ríkisstjórnin þurfi að útskýra hvað gerðist, hvers vegna og hvort mistök hafi átt sér stað. Opinberir starfsmenn sem beri ábyrgð á mistökum verði að axla ábyrgð sína, hugsanlega með afsögn. Ritgerð þeirra Jóns og Gylfa má nálgast á heimasíðu Háskóla Íslands, hi.is - undir nafninu Hagkerfi bíður skipbrot.
Mest lesið Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Sjá meira