Vísbendingar um að gjaldeyrir skili sér ekki samkvæmt reglum 10. febrúar 2009 11:01
Greining Glitnis segir að vísbendingar séu um að gjaldeyrir hafi hingað til ekki skilað sér með þeim hætti sem reglur kveða á um. Veltan á millibankamarkaðinum með gjaldeyri hefur þannig verið afar lítil. Í Morgunkorni greiningarinnar segir að heildarveltan í janúar síðastliðnum var þannig einungis tæpir 4 milljarðar kr. samanborið við 645 milljarða kr. í janúar í fyrra. Ríflega þriðjung veltunnar í janúar átti Seðlabankinn en hann hefur allt frá hruni bankanna beitt gjaldeyrisinngripum með það að markmiði að styrkja krónuna. Greining segir að það sé ekki gott að sjá fyrir þróun krónunnar um þessar mundir. Markaðsöflin hafa að stórum hluta verið tekin úr sambandi með gjaldeyrishöftunum. Höftin kippa áhrifavöldum fjármagnsflæðis úr sambandi við gengi krónunnar og það ræðst fyrst og fremst af vöru- og þjónustuviðskiptum að viðbættum vaxtagreiðslum. Reikna má með því að afgangur af vöru- og þjónustuviðskiptum hafi stutt við gengi krónunnar á undanförnum mánuðum og að svo verði áfram á næstunni. Nokkur töf getur hins vegar verið á því að sá afgangur skili sterkari krónu en ætla má að bankahrunið hafi haft þau áhrif að greiðslufrestir útflutningsfyrirtækja hafi lengst og greiðslufrestir innflutningsfyrirtækja styst. Á móti styrkingaráhrifum afgangsins á vöru- og þjónustuviðskipum á gengi krónunnar vegur að vaxtagreiðslur til útlanda hafa verið umtalsverðar enda erlendar skuldir þjóðarbúsins töluverðar.
Mest lesið Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Sjá meira