Einar verður forstjóri Mjólkursamsölunnar 10. febrúar 2009 12:13 Einar Sigurðsson verður forstjóri Mjólkursamsölunnar 1.apríl.
Einar Sigurðsson forstjóri Árvakurs mun láta af því starfi og taka við sem forstjóri Mjólkursamsölunnar. Þetta staðfesti Egill Sigurðsson stjórnarformaður MS í samtali við Vísi. Einar tekur við starfi forstjóra þann 1.apríl og mun starfa við hlið núverandi forstjóra til 1.maí og tekur þá alfarið við. „Við erum gríðarlega ánægðir með að fá hann Einar í lið með okkur," segir Egill en Magnús Ólafsson núverandi forstjóri MS mun halda áfram hjá fyrirtækinu. „Nú er hann bæði forstjóri MS og Auðhumlu sem er aðaleigandi Mjólkursamsölunnar, hann mun gegna því starfi áfram auk þess sem hann verður nýjum forstjóra til ráðgjafar fyrst um sinn," segir Egill. Ekki náðist í Einar Sigurðsson við vinnslu fréttarinnar. Tilkynning frá Árvakri barst hinsvegar í kjölfar fréttarinnar: Einar Sigurðsson, forstjóri Árvakurs hf., hefur verið ráðinn forstjóri Mjólkursamsölunnar frá og með 1. apríl. Einar mun áfram, fyrir hönd Árvakurs, stýra til loka söluferli þar sem unnið er að því að afla félaginu nýs hlutafjár í samvinnu við Nýja Glitni banka. Fimm óskuldbindandi tilboð komu í nýtt hlutafé í félaginu í síðustu viku og fjórum var boðið áframhaldandi þáttaka í söluferlinu. Þeir eru nú að hefja gagnakönnun og samræður við stjórnendur félagsins. Miðað er við að söluferlinu ljúki með bindandi tilboðum 17. febrúar „Ég kom hingað að Árvakri með það verkefni að gera umfangsmiklar breytingar á starfseminni til að treysta reksturinn,“ segir Einar. „Í upphafi árs 2008 virtist þetta hafa tekist en efnahagshrunið, gengisfall krónunnar og áhrif þess á tekjur og skuldir setti okkur í alveg nýja stöðu líkt og mörg önnur fyrirtæki. Ég hef notið til þess ótrúlegs stuðnings og þrautseigju allra starfsmanna og stjórnar félagsins að endurskipuleggja reksturinn í vetur og nú sér fyrir endann á söluferli nýs hlutafjár. Fjórir áhugasamir fjárfestar undirbúa gerð tilboða í hlutafé í fyrirtæki sem gegnir gífurlega mikilvægu hutverki við þessar kringumstæður í samfélaginu. 80% þjóðarinnar nýta sér á hverjum degi fréttaþjónstu Árvakursmiðlanna, Morgunblaðsins og mbl.is. Þessir miðlar njóta trausts umfram alla einkarekna fjölmiðla í öllum mælingum sem gerðar eru.“ Gert er ráð fyrir að nýtt hlutafé Árvakurs verði gefið út seinni partinn í febrúar þegar núverandi hluthafar færa niður sitt hlutafé í samræmi við samkomulag sem gert var við viðskiptabanka félagsins í upphafi söluferlisins í desember.
Mest lesið Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Viðskipti innlent Ástarsaga: Markmiðið að allir verði ástfangnir af LOVE Atvinnulíf Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Viðskipti innlent Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Viðskipti innlent Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Viðskipti innlent Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? Samstarf Fleiri fréttir Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Sjá meira