Samþykkt Icesave samnings tryggir betra lánshæfi ríkisins 22. júlí 2009 17:43
Gangi endurfjármögnun bankanna eftir samkvæmt áætlun sem stjórnvöld kynntu á mánudag hefur náðst að uppfylla annað tveggja lykilatriða sem matsfyrirtækið Fitch Ratings fylgist með um þessar mundir til þess að geta tekið lánshæfismat Íslands af neikvæðum horfum. David Riley, forstöðumaður lánshæfismats ríkissjóða hjá Fitch Ratings, segir að samþykkt Icesave samningsins gæti, ásamt endurfjármögnun bankanna, farið langleiðina með að tryggja lánshæfismat Íslands í fjárfestingaflokki. Þetta kemur fram í hagsjá Landsbankans. Bloomberg fréttaveitan hefur þetta eftir David Riley, forstöðumanni lánshæfismats ríkissjóða hjá Fitch Ratings. Samkvæmt frétt Bloomberg er hitt lykilatriðið úrlausn Icesave málsins, en að mati Fitch væri samþykkt Icesave samningsins lokahnykkurinn sem þarf til að ríkið geti lokið fjárhagsáætlun til meðallangs tíma. Sú áætlun sé nauðsynleg svo hægt verði að klára endurskoðun samkomulagsins við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og afgreiða lán frá honum og öðrum lánardrottnum. Ef allt gengur eins og áætlanir gera ráð fyrir segir Fitch það vera skýr skref í rétta átt sem munu hafa jákvæð áhrif á efnahagshorfur Íslands til meðallangs tíma og lánstraust ríkissjóðs.Fer langleiðina með að tryggja lánshæfismat í fjárfestingaflokki Ríkissjóður hefur nú lánshæfiseinkunnina BBB- hjá Fitch sem er lægsta mögulega einkunn í fjárfestingarflokki, þ.e. aðeins einu þrepi fyrir ofan svokallaðan spákaupmennskuflokk (e. non-investment grade). Standard & Poor's gefur ríkissjóði sömu einkunn. Hins vegar gefur Moody's íslenska ríkinu einkunnina Baa1 sem er þremur þrepum ofan spákaupmennskuflokks. Allar einkunnir eru á neikvæðum horfum. Lækki einkunn niður í spákaupmennskuflokk hefði það bæði áhrif á getu ríkissjóðs til útgáfu skuldabréfa (lántöku) svo og á þau vaxtakjör sem byðust af slíkri útgáfu. Flestar fjármálastofnanir, þar með taldir bankar, sjóðir og tryggingafélög, eru bundnar af reglum um tiltekið lánshæfismat þeirra fjármálagerninga sem þeim er leyfilegt að fjárfesta í. Samþykkt Icesave samningsins gæti, ásamt endurfjármögnun bankanna, farið langleiðina með að tryggja lánshæfismat Íslands í fjárfestingaflokki.
Mest lesið Fjárfestu í karllægum félögum og báðu síðan um fund með forstjóranum Atvinnulíf Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Viðskipti innlent Hopp tekur rafræn ökuskírteini í notkun í appinu Viðskipti innlent Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Viðskipti innlent Regluleg viðskipti hjá Orkunni skila viðskiptavinum raunverulegum ávinningi Samstarf Elkjøp fær milljónasekt fyrir persónuverndalagabrot Viðskipti erlent Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Viðskipti innlent Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Viðskipti innlent OpenAI setur einnig stefnuna á hlutafjárútboð Viðskipti erlent Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hopp tekur rafræn ökuskírteini í notkun í appinu Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Bætast í hóp samstarfsfélaga Icelandair Flugmenn og Icelandair funda á morgun Sagan full af dæmum þar sem mikilvæg félög hverfa Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Icelandair tekur litáíska vél á leigu Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Sjá meira