Fjárfestingarsjóður lífeyrissjóða verður myndarlegur að stærð 9. september 2009 10:01
Stefnt er að því að halda stofnfund fyrir fjárfestingarsjóð lífeyrissjóðanna um miðjan október. Arnar Sigurmundsson formaður stjórnar Landsamtaka lífeyrissjóðanna segir að um myndarlegan sjóð verði að ræða eða upp á tugi milljarða kr. Á fundi sem lífeyrissjóðirnir héldu um málið í gærdag kom fram að ráðstöfunarfé lífeyrissjóðanna í heild nemi um 100 milljörðum á hverju ári. Arnar segir að þetta fé sé notað til kaupa á ríkisskuldabréfum, húsbréfum og öðrum traustum eignum. „Það á hinsvegar eftir að ákveða hve stór hluti af þessari upphæð yrði notuð til að mynda fjárfestingarsjóðinn," segir Arnar. Stjórnir lífeyrissjóðanna hafa nú fram að miðjum október til að ræða málið og ákveða framlag hvers um sig að Fjárfestingarsjóði Íslands sem er vinnuheitið á sjóðnum. Aðspurður segir Arnar að stefnt sé að því að viðkomandi lífeyrissjóðir hafi síðan næstu þrjú til fjögur árin til að greiða inn stofnfjárframlag sitt til sjóðsins. „Að þeim tíma liðnum ætti sjóðurinn að vera farinn að fá inn hagnað af þeim verkefnum sem sett verða í gang þegar starfsemin hefst nú í vetur," segir Arnar. Aðspurður um verkefnavalið hjá sjóðnum segir Arnar að þar sé verið að ræða um fjárfestingar í bæði stórum og smáum fyrirtækjum. „Við vitum að það eru til mörg burðug fyrirtæki í landinu sem hafa farið illa út úr hruninu en eiga framtíð fyrir sér ef fjármagn fæst inn í reksturinn," segir Arnar. „Þetta verður allt skoðað."
Mest lesið Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Bandaríkjamenn banna innflutning dróna Viðskipti erlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Bíóinu í Álfabakka lokað í janúarlok Viðskipti innlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Sigga Lund lenti illa í „Vefstól Svanhildar“ og varar aðra við Neytendur Fleiri fréttir Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sjá meira