Viðskipti innlent

Icelandair tapaði 3,6 milljörðun á fyrsta ársfjórðungi

Tap Icelandair eftir skatta var 3,6 milljarðar króna á fyrsta ársfjórðungi ársins en var 1,7 milljarða króna á sama tíma í fyrra.

Í tilkynningu um uppgjörið segir að niðurstaðan sé betri en áætlanir gerðu ráð fyrir, þrátt fyrir mjög krefjandi rekstrarumhverfi og um sé að ræða besta rekstrarafkomu íslenska flugfélagsins Icelandair ehf. á fyrsta ársfjórðungi frá því að félagið var stofnað í núverandi mynd.

Heildarvelta félagsins var 20,7 milljarðar króna og jókst um 48% frá sama tíma í fyrra.

Handbært fé í lok ársfjórðungsins var 2,8 milljarðar króna, en var 3,3 milljarðar á sama tíma í fyrra.

Eignir voru 98,1 milljarður króna í lok mars 2009 samanborið við 98,8 milljarða króna í árslok 2008. Eiginfjárhlutfall var 17,2 % í lok mars 2009, en var 20,3% í lok ársins 2008.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×