Kröfuhafar Straums stofna nýjan banka 8. desember 2009 12:27
Fari allt að óskum munu kröfuhafar Straums stofna fjárfestingabanka undir nýju nafni snemma næsta vor. Ætlunin er að skipta Straumi upp í tvennt, annarsvegar eignarhaldsfélag sem færi með eignir og skuldir Straums fyrir kröfuhafanna og hinsvegar fyrrgreindan banka.Þetta kemur fram í máli Georg Andersen forstöðumanns samskipasviðs Straums en í morgun var haldinn fundur með kröfuhöfum bankans. Georg segir að hinn nýi fjárfestingarbanki muni verða „lítill og hógvær" eins og hann orðar það. „Bankinn mun einkum starfa á sviði ráðgjafar og miðlunnar," segir Georg.Fram kom á fundinum að þegar sé búið að selja eignir fyrir 247 milljónir evra eða um 45 milljarða kr. og segir Georg að það sé ívið meira en upprunalegar áætlanir gerðu ráð fyrir.Alls eru eignir Straums nú metnar á 1,2 milljarða evra eða um 220 milljarða kr. en kröfur á hendur bankanum nema 1,8 milljörðum evra. Forgangskröfur verða greiddar að fullu og sem stendur er reiknað með að 53% af almennum kröfum fáist greiddar. Það hlutfall kann að hækka.Tvö mál eru verða rekin fyrir dómstólum af kröfuhöfum sem ekki eru sáttir við röðina á kröfum sínum. Þar er annarsvegar um að ræða Landsbankann með kröfu upp á 288 milljónir evra sem bankinn vill fá skilgreinda sem forgangskröfu. Hinsvegar er um að ræða lífeyrissjóði sem vilja að skuldabréf þeirra upp á 132 milljónir evra verði einnig forgangskröfur.Georg segir að bæði þessi mál hafi fengið flýtimeðferð í dómskerfinu og að vonandi náist niðurstaða í þeim í febrúar/mars á næsta ári. Þegar þessum málum lýkur er ekkert því til fyrirstöðu að skipta Straumi í tvennt eins og að framan greinir.Aðspurður um hljóðið í kröfuhöfunum segir Georg það vera jákvætt. „Við höfum unnið með kröfuhöfunum hönd í hönd og sú vinna hefur skilað miklu," segir Georg.
Mest lesið Rukka ekki lengur foreldra fyrir að sitja við hlið barna sinna Viðskipti erlent „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Viðskipti innlent Missir stöðu sína sem eini billjónamæringur heims Viðskipti erlent Einungis sjö bílar kallaðir inn Neytendur Súkkulaði hækkað um tæpan þriðjung á tveimur árum Neytendur Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu Viðskipti innlent Það borgar sig að bregðast við í tíma: Hagnýt ráð frá múrarameistara Samstarf Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Viðskipti innlent Kaupmáttur heldur áfram að aukast Neytendur Olíuverð ekki verið lægra frá því árásirnar á Íran hófust Viðskipti erlent Fleiri fréttir Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Rakel nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Segir ríkar ástæður fyrir því að flugmenn eigi að vera vel launaðir Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum John Strickland: Icelandair þarf að vera snjallt þegar nýjar þotur breyta leiknum Samkeppnishæfni Íslands og annarra Norðurlanda fellur milli ára Þróunin í þá átt að verða enn meiri kaupendamarkaður Nýtt endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtæki undir merkjum LOGOS Villi Birgis grætur Krambúðina á Akranesi Bláa lónið festir kaup á Arctic Adventures og stefnir á markað LánHeimur ekki undir eftirliti fjármálaeftirlits Sjá meira