SpKef, Byr og SPRON vilja sameinast 4. desember 2008 13:28 Ragnar Z. Guðjónsson er forstjóri Byrs.
Stjórnir Sparisjóðsins í Keflavík, Byrs sparisjóðs og SPRON hafa undirritað viljayfirlýsingu þess efnis að hefja undirbúning og vinnu sem miðar að því að sameina sparisjóðina. Sparisjóðirnir hafa skuldbundið sig til að ræða ekki við aðra aðila um samstarf eða sameiningu á meðan að viðræður standa yfir. Stefnt er að því að niðurstaða liggi fyrir eins fljótt og hægt er. Í viljayfirlýsingunni kemur fram að unnið verður eftir aðgerðaráætlun og er stefnt að því að stofnfjáreigendur og hluthafar verði boðaðir til fundar í febrúarmánuði til þess að fjalla um tillögu að samruna sem mun miðast við 1. janúar 2009. „Sparisjóðurinn er jákvæður fyrir sameiningarviðræðunum. Þessir þrír sparisjóðir eiga hvað mesta samleið og gangi sameiningin eftir verður til sterk eining í sparisjóðafjölskyldunni öllum sparisjóðum til hagsbóta. Á þessum erfiðu tímum sem framundan eru, þá mun sameinaður sterkur sparisjóður mynda tryggan rekstrargrundvöll og skapa traust viðskiptavina og annarra hagsmunaaðila," segir Geirmundur Kristinsson, sparisjóðsstjóri Sparisjóðsins í Keflavík, í tilkynningu sem send var út vegna málsins. Hann segir jafnframt að sameinaður sparisjóður muni áfram þjónusta sitt starfssvæði á öflugan hátt og í góðum tengslum við samfélagið. Sameining sjóðanna muni leggja grunninn að framtíð sparisjóða á Íslandi. Ragnar Z. Guðjónsson, sparisjóðsstjóri Byrs sparisjóðs, segir að stjórn Byrs hafi ákveðið að fara í þessar viðræður þrátt fyrir sterka stöðu Byrs með hagsmuni viðskiptavina og annara hagsmunaaðila að leiðarljósi. „Með viðræðunum erum við að kanna hvort grundvöllur sé fyrir sameiningu fyrirtækjanna. Náist niðurstaða sem er öllum aðilum að skapi, er lagður grunnur að sterku fyrirtæki sem er vel í stakk búið að takast á við framtíðina," segir Ragnar. Hann segir að sameinaður sparisjóður eigi einnig mikil sóknarfæri þegar markaðir komist aftur í eðlilegt horf. Það sé því áhugavert fyrir Byr að skoða þennan möguleika ofan í kjölinn. Þessi kostur verði því kannaður til hlítar eins hratt og auðið verður. Guðmundur Hauksson, forstjóri SPRON segir að markmið sameiningarinnar sé að styrkja sparisjóðina í því erfiða efnahagsumhverfi sem framundan sé og stuðla að aukinni hagræðingu í íslensku fjármálakerfi. Með samrunanum verði til stærri og öflugri eining, sem sé vel í stakk búin að til takast á við ný og krefjandi framtíðarverkefni. Sparisjóðirnir hafi allir þrír lagt ríka áherslu á persónulega og góða þjónustu til viðskiptavina sinna og með stærri og öflugri einingu verði hægt að efla þjónustu þeirra enn frekar.
Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Sjá meira