Raunlækkun húsnæðisverðs nemur um 17% frá áramótum 16. desember 2008 13:30
Húsnæðisverð hefur lækkað nokkuð á þessu ári. Að raunvirði er lækkunin á höfuðborgarsvæðinu um 17% frá upphafi árs. Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Glitnis. Þar segir að þessi þróun komi ekki á óvart í ljósi þess að húsnæðisverð lækkar almennt allnokkuð í banka- og gjaldeyriskreppum. Viðbúið er að húsnæðisverð lækki meira og jafnvel mikið meira. Þorri íslenskra heimila verða illa undir í þessari þróun en um 80% íslenskra heimila eiga það húsnæði sem þau búa í. Afar stór hluti af sparnaði landsmanna er bundinn í húsnæði sem eigið fé á móti skuldum. Eiginfjárhlutfallið er afar mismunandi en verst fer sparifé þeirra sem eru með lágt eiginfjárhlutfall í eign sem lækkar hvað mest í verði. Erfiðleikarnir eru mestir meðal þeirra sem þurfa nú að borga háar afborganir samhliða því að standa frami fyrir tekjusamdrætti vegna kreppunnar. Húsnæðisverðshækkanir undanfarinna ára hafa ásamt vaxandi kaupmætti og fleiri þáttum verið grundvöllur aukinnar neyslu. Ávinningurinn eða eiginfjáraukningin hefur verið veðsett að hluta og nýttur í neyslu. Eignaverðsáhrif hækkandi húsnæðisverðs hafa þannig knúið vöxtinn í hagkerfinu. Þessi áhrif eru tiltölulega sterk hér á landi vegna þess hve húsnæðiseign er almenn. Nú gerist hið gagnstæða. Húsnæðisverðslækkanir og væntingar um slíkt hefta aðgang að fjármagni. Flestum heimilum finnst þau einnig fátækari þegar eign þeirra hefur rýrnað í verði. Dregur þetta úr neyslu um þessar mundir.
Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Sjá meira