Viðskipti innlent

Hansa fær lengri greiðslustöðvun - Sala á West Ham í fullum gangi

Björgólfur Guðmundsson.
Björgólfur Guðmundsson.

Héraðsdómur Reykjavíkur féllst á það í dag að veita Hansa ehf, sem er í eigu Björgólfs Guðmundssonar, framlengingu á greiðslustöðvun félagsins til 6. mars 2009. MP Banki, einn af lánadrottnum félagsins krafðist þess að beiðninni væri hafnað en dómari féllst ekki á það. Ein helsta ástæða þess að dómari féllst á lengri greiðslustöðvun er sú að sala á fótboltaliðinu West Ham, sem er langstærsta og verðmætasta eign Hansa, er í fullum gangi. Vonast er til að um 250 milljónir punda fáist fyrir félagið. Hansa bendir á að salan á félaginu sé grundvallarforsenda þess að félaginu takist að koma skikk á fjármál sín.

Í greinargerð frá Hansa sem lögð var fyrir dóminn kemur fram að söluferli West Ham sé þegar hafið og annist stór alþjóðlegur banki, Standard bank Plc. annist söluna ásamt Novator Partners. Mánuður er nú liðinn frá því byrjað var að hafa samband við mögulega kaupendur. Þá segir að þrátt fyrir að erfitt sé að meta verðmæti fótboltafélags geri Hansa sér væntingar um að verðmætið gæti numið 200-240 milljónum punda.

Þá gefi ný­leg sala á Manchester City væntingar um hærra verð, en það félag hafi selst á 230 millj. punda. West Ham er talið verðmætara félag en Manchester City meðal annars vegna „staðsetningar í London, tryggra áhangenda, meiri möguleika á tengdum fasteignaverkefnum, nálægð við ólympíu­þorp og þeirrar staðreyndar að West Ham er eigandi að eigin velli sem Man. City sé ekki." Því gefi salan á Man. City væntingar um verðmæti á West Ham umfram 250. milljónir punda sem myndi færa Hansa ehf. nægilegan hagnað til að greiða áhvílandi veðskuldir.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×