Nokkuð dregur úr viðskiptahallanum 5. desember 2008 12:11
Samkvæmt nýbirtum tölum Seðlabankans var viðskiptajöfnuður á 3. ársfjórðungi neikvæður um 109,6 milljarða kr. Er það nokkru minni halli en á öðrum fjórðungi ársins, en þá mældist viðskiptahallinn 128 milljarða kr., sem er mesti viðskiptahalli í einum fjórðungi frá því Seðlabankinn hóf að taka saman ársfjórðungslegar greiðslujafnaðartölur árið 1990. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Glitnis. Þar segir að stærsti hluti viðskiptahallans skrifast á jöfnuð þáttatekna sem var neikvæður um 88 milljarða kr. Munar þar mestu um 130 milljarða kr. vaxtagjöld, en fimmtungs aukning varð í þeim lið á milli ársfjórðunga. Á móti koma vaxtatekjur sem námu 55 milljarða kr. á tímabilinu. og höfðu vaxið um 15% frá fyrri ársfjórðungi. Hér þarf að raunar að taka í reikninginn að gengi krónu var að meðaltali 6% lægra á þriðja ársfjórðungi en á öðrum fjórðungi ársins. Skoða má ofangreindar tölur sem svipmynd af endalokum tímabils. Viku eftir lok 3. ársfjórðungs voru neyðarlögin sett og hrun íslenska bankakerfisins varð staðreynd. Með því breyttust mikið ýmsar þær stærðir sem ráða miklu um þróun viðskiptajafnaðar. Til að mynda er ljóst að þáttatekjujöfnuður mun spila talsvert minna hlutverk næsta kastið en verið hefur undanfarin ár, og afgangur af vöru- og þjónustujöfnuði er tekinn við af miklum halla á undangengnum misserum. Því er líklegt að tímar mikils viðskiptahalla séu að baki og að niðurstaðan verði nálægt núllinu, eða hugsanlega nokkur afgangur af utanríkisviðskiptum næstu árin.
Mest lesið Samherji gæti tvöfaldast Viðskipti innlent Hámark tvær vikur í heilsutengd áramótaheit með eiginkonunni Atvinnulíf Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur Bandaríkjamenn banna innflutning dróna Viðskipti erlent Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Neytendur Eldsneytisverð gæti lækkað um tugi króna á nýju ári Neytendur Landsbankinn sýknaður af öllum kröfum í Vaxtamálunum Neytendur Fær íshellaferð ekki endurgreidda Neytendur Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Hvetja neytendur til að vera á varðbergi eftir áramót Neytendur Fleiri fréttir Samherji gæti tvöfaldast Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Sjá meira