Eftiráspekin er léttvæg Óli Kristján Ármannsson skrifar 23. maí 2008 06:00 Í byrjun fundar Létt var yfir aðalhagfræðingi og bankastjórn Seðlabanka Íslands við upphaf kynningarfundar vaxtaákvörðunar í gær. Við borðið sitja Arnór Sighvatsson, Ingimundur Friðriksson, Eiríkur Guðnason og Davíð Oddsson. Fréttablaðið/Stefán
Stýrivextir eru óbreyttir í 15,5 prósentum, samkvæmt ákvörðun bankastjórnar Seðlabanka Íslands í gær. Verðbólguhorfur til skemmri tíma hafa versnað, en bankastjórnin vonast engu að síður til þess að áður kynntur stýrivaxtaferill bankans kunni að halda. Litlar líkur eru því á að vextir lækki á næsta ákvörðunardegi stýrivaxta 3. júlí. Verðbólga gæti orðið meiri á næstunni en Seðlabanki Íslands gerði ráð fyrir í spá sinni í apríl. Engu að síður telur bankastjórn Seðlabankans ekki ástæðu til að hreyfa við stýrivöxtum að sinni og eru þeir því óbreyttir í 15,5 prósentum, samkvæmt ákvörðun sem kynnt var í gær. „Bankinn lítur til þess að aðhaldið sem núverandi vaxtastig veitir muni nægja til að verðbólgan láti að lokum undan þessum þrýstingi bankans og öðrum breytingum,“ segir Davíð Oddsson, formaður bankastjórnarinnar. Ekki er hins vegar komið að lækkunarferli vaxta í bráð og „mikið óráð“, að sögn Davíðs, að búast við lækkun á næsta ákvörðunardegi í júlí. Ekki verði slakað á peningalegu aðhaldi fyrr en sýnt sé að verðbólga sé á undanhaldi. Hann segir horft til þess að verðbólga taki undan að láta í lok ársins eða byrjun þess næsta. „Samkvæmt spá Seðlabankans sem birt var í Peningamálum í apríl dregst innlend eftirspurn verulega saman á næstu árum og húsnæðismarkaðurinn kólnar. Merki um hið síðarnefnda hafa skýrst frá því í byrjun apríl og nú virðist einnig ótvírætt að tekið sé að draga úr vexti eftirspurnar,“ segir Davíð, en kveður enn ekki skýr merki um samdrátt á vinnumarkaði. Hann segir afar brýnt að aukin verðbólga til skamms tíma leiði ekki til víxlverkunar launa, verðlags og gengis. Þá eru háum stýrivöxtum, með öðrum aðgerðum Seðlabankans og annarra stjórnvalda, svo sem aukinni útgáfu ríkisbréfa, ætlað að stuðla að stöðugleika á gjaldeyrismarkaði, sem mun vera mikilvæg forsenda þess að böndum verði komið á verðbólgu. Næsta þriðjudag verða gefin út ríkisskuldabréf fyrir 15 milljarða króna og kveðst Davíð búast við góðri þátttöku þar, enda hafi skort á slíka útgáfu. Útgáfan er sú fyrri af tveimur, en alls verða gefnir úr 25 milljarðar. Þá bendir Davíð á að gjaldmiðlaskiptasamningar bankans við seðlabanka Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar hafi haft jákvæð áhrif á fjármálamarkaði, þótt þeir leysi ekki allan vanda. Um leið segir hann best að láta verkin tala þegar kemur að lántökum til eflingar gjaldeyrissjóðnum eða frekari samningum um lánalínur og er því ekki upplýst frekar um tímasetningar í þeim efnum. Davíð gefur hins vegar ekki mikið fyrir skoðanir sem hagfræðingar hafa viðrað um að mistök hafi verið að byrja ekki miklu mun fyrr að efla gjaldeyrisvarasjóð þjóðarinnar. „Núna er í gangi margvísleg eftiráspeki og hún er tiltölulega léttvæg. En ef það er svo að menn uppi í Háskóla Íslands sáu fyrir þær þrengingar sem urðu á alþjóðlegum gjaldeyrismarkaði í júlí og ágúst 2007 þá held ég að þeir hefðu átt að segja frá því. Þeir hefðu getað sparað heimsmarkaðnum milljónir eða trilljónir evra og punda. Það er því vont að þeir skyldu þegja yfir þeirri vitnesku sinni,“ segir hann. Um leið bætir Davíð við að Seðlabankinn hafi, eftir að látið var af gengismarkmiði, aukið forða sinn jafnt og þétt. Þannig segist hann ekki muna til þess að hagfræðingar hafi fagnað sérstaklega ákvörðun sem tekin var um tvöföldun gjaldeyrisforðans árið 2006.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Taka upp gjaldskyldu við Smáralind Neytendur Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Viðskipti innlent Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Viðskipti innlent Taka ekki upp gjaldskyldu við Kringluna Neytendur Konungborinn Katari kaupir eina af bungabunga-höllum Berlusconi Viðskipti erlent Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Viðskipti innlent Vinnupallar bjóða heildarlausnir fyrir öruggari framkvæmdir Samstarf Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Viðskipti innlent Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Viðskipti innlent Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Rakel nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Segir ríkar ástæður fyrir því að flugmenn eigi að vera vel launaðir Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum John Strickland: Icelandair þarf að vera snjallt þegar nýjar þotur breyta leiknum Samkeppnishæfni Íslands og annarra Norðurlanda fellur milli ára Þróunin í þá átt að verða enn meiri kaupendamarkaður Nýtt endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtæki undir merkjum LOGOS Villi Birgis grætur Krambúðina á Akranesi Bláa lónið festir kaup á Arctic Adventures og stefnir á markað LánHeimur ekki undir eftirliti fjármálaeftirlits ESB gæti markað endalok umdeildra skilmála Icelandair Byrjaði sem fulltrúi í söludeild dótturfyrirtækis og er nú framkvæmdastjóri hjá Eimskip Klára námslánið eða greiða inn á húsnæðislánið? Sjá meira